Fotbolti.net
@orvar05Örvar Arnarsson
Örvar Arnarsson
Pepsi-deild karla
Hlíðarendi
Frábærar, sól og sumarylur
Valur
Valur
4 - 0
Keflavík
Keflavík
Kolbeinn Kárason 47'1 - 0Matthías Guðmundsson 49'2 - 0Kolbeinn Kárason 60'3 - 0Kristinn Freyr Sigurðsson 88'4 - 0
Dómari: Erlendur Eiríksson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Góðan og blessaðan sumardag. Héðan frá Hlíðarenda verður bein textalýsing á leik Vals og Keflavíkur sem hefst, að öllum líkindum, stundvíslega kl 19.15. Geir Ólafsson er mættur á Lollastúkuna á Hlíðarenda og bíður spenntur.
0. mín
Athygli vekur að í byrjunarliði Vals eru hvorki Halldór Kristinn Halldórsson né Guðjón Pétur Lýðsson. Í þeirra stað koma Brynjar Kristmundsson og Kolbeinn Kárason. Í liði Keflvíkinga snýr Hilmar Geir Eiðsson aftur í byrjunarlið þeirra en Jóhann Ragnar Benediktsson tekur út leikbann.
0. mín
Fyrir leikinn í dag eru Valsmenn í 9. sæti Pepsi deildarinnar með 6 stig en Keflvíkingar eru í því 5. með 7 stig. Það er því skammt stórra högga á milli og leikurinn mikilvægur báðum liðum.
1. mín
Þá er leikurinn hafinn! Valsmenn sækja í átt að að Landspítalanum en Keflvíkingar í átt að Keiluhöllinni.
Keflavík
7. mín
Gult spjald

Frans Elvarsson

Gult spjald fyrir lítilfjörlega tæklingu á Brynjari Kristmundssyni.
20. mín
Við biðjumst velvirðingar á tæknilegum örðuleikum með nettengingu héðan af Hlíðarenda. Í millitíðinni hefur lítið gerst í leiknum. Keflvíkingar hafa átt eitt færi og Valsmenn tvö hálffæri.
Valur
20. mín
Gult spjald

Úlfar Hrafn Pálsson

Úlfar braut á fyrrum liðsfélaga sínum Hilmari Geir en þeir eigast við á kantinum í dag, Úlfar sem bakvörður og Hilmar kantmaður.
25. mín
Keflvíkingar eru sterkari aðilinn þessa stundina og eiga hér hornspyrnu eftir fína sókn sem fór kantanna á milli. Úr hornspyrnunni átti Guðmundur Steinarsson fínan skalla en boltinn fór framhjá.
28. mín
Guðmundur Steinarsson leikur listir sínar og tók hér boltann niður á liðsfélaga sinn með öxlinni eftir útspark. Steinarsson samur við sig.
29. mín
Matthías Guðmundsson átti laglegan sprett upp í gegnum vörn Keflvíkinga og gaf fínan bolta fyrir markið en þar var enginn nema Keflavíkurvörnin. Boltinn barst að lokum til Úlfars Hrafns sem átti misheppnað skot fyrir fætur Kolbeins Kárasonar sem kláraði færið illa og boltinn framhjá. Þetta er allt að lifna við.
33. mín
Frans Elvarsson í fínu færi. Fékk boltann inni í vítateig og sneri af sér tvo Valsmenn en Haukur Páll náði að pota í boltann og koma í veg fyrir skot. Vel gert hjá Frans.
36. mín
Enn eiga Keflvíkingar fína sókn. Boltinn barst upp hægri kantinn og fyrir markið en skalli Jóhanns Birnis var yfir markið.
45. mín
Það er kominn hálfleikur hér á Hlíðarenda. Bæði lið hafa átt ágætis sóknir en Keflvíkingar virkað sprækari. Leikurinn hefur heilt á litið verið fremur rólegur og daufur.
Keflavík
45. mín
InnBojan Stefán Ljubicic
ÚtGuðmundur Steinarsson
Guðmundur meiddist í seinustu tæklingu hálfleiksins. Þetta eru slæm tíðindi fyrir Keflvíkinga. Leikurinn er hafinn að nýju.
Valur
47. mín
MAAAARK!

Kolbeinn Kárason

Kolbeinn skorar hér fínt mark. Hann fékk boltann og dúndraði að marki beint undir Ómar Jóhannson sem hefði átt að gera betur í þessu marki.
Valur
49. mín
MAAAARK!

Matthías Guðmundsson

Aftur skora Valsmenn! Matthías Guðmundsson fékk boltann einn á auðum sjó í miðjum vítateignum eftir fyrirgjöf Bynjars Kristmundssonar og lagði boltann snyrtilega í hornið.
52. mín
Þessi seinni hálfleikur byrjar þveröfugt við hvernig sá fyrri endaði. Eitthvað hefur Kristján Guðmundsson hrist upp í sínum mönnum því þeir virka mun grimmari og ákveðnari þessar fyrstu mínútur.
55. mín
Þar skall hurð nærri Keflavíkurhælum. Haraldur Freyr var heillum horfinn og Kolbeinn Kárason hirti af honum boltann og komst einn gegn Ómari en setti boltann rétt framhjá. Kolbeinn hefur komið sterkur inn í Valsliðið og átt fína spretti.
58. mín
Haraldur Freyr með fínan skalla sem Sindri Snær varði vel í horn.
Valur
60. mín
MAAAARK!

Kolbeinn Kárason

Kolbeinn sneri sér lauflétt við með tvo Keflvíkinga í bakinu og komst upp að endalínu. Þar setti hann boltann beint á Ómar sem varðist utarlega og inn fór boltinn. Spurning hvort boltinn hafi verið á leið í markið eða hvort Ómar eigi skilið sjálfsmark?
Valur
63. mín
InnKristinn Freyr Sigurðsson
ÚtÁsgeir Þór Ingólfsson
65. mín
Kristinn Freyr, nýkominn inn á, átti hér hörkufínt skot úr miðjum teignum en rétt framhjá.
Keflavík
67. mín
InnArnór Ingvi Traustason
ÚtSigurbergur Elísson
Keflavík
67. mín
InnMagnús Sverrir Þorsteinsson
ÚtFrans Elvarsson
Tvöföld skipting hjá Zoran Daníel sem er að vonum ekki sáttur við sína menn.
Valur
70. mín
InnAndri Fannar Stefánsson
ÚtÚlfar Hrafn Pálsson
Úlfar fékk þungt högg á kjammann fyrr í leiknum og gæti verið á leið til tannlæknis.
72. mín
Valsmenn eiga hér aukaspyrnu á hættulegum stað eftir flottan sprett Kristins Freys.
72. mín
Rúnar Már tók spyrnuna, hún var föst en beint í fangið á Ómari sem greip boltann.
75. mín
Aftur nær Haraldur Freyr að skalla boltann að marki eftir hornspyrnu en Sindri Snær og varnarmenn Vals náðu að koma boltanum frá.
76. mín
Kolbeinn Kárason er hvergi nærri hættur. Hann fékk boltann á miðjunni og spólaði sig í gegnum vörn Keflvíkinga en Einar Orri náði að komast fyrir skot Kolbeins.
80. mín
Rúnar Már tætti hér fram völlinn og framhjá Grétari Atla sem togaði Rúnar niður. Aukaspyrna dæmd alveg við vítateigslínuna. Brynjar Kristmundsson tók spyrnuna og skrúfaði boltann rétt yfir mark Keflvíkinga.
Valur
81. mín
InnAtli Heimisson
ÚtKolbeinn Kárason
Besti maður vallarins fær ekki möguleika á þrennunni.
Keflavík
84. mín
Gult spjald

Einar Orri Einarsson

Valur
88. mín
MAAAARK!

Kristinn Freyr Sigurðsson

Eftir frábæra sendingu Rúnars Más kom Kristinn Freyr boltanum yfir línuna úr miðjum vítateignum.
91. mín
Matthías Guðmundsson var hér kominn aleinn á móti Ómari en virtist hafa of langan tíma til að athafna sig og setti boltann hátt og langt framhjá. Illa farið með úrvals færi.
Valur
93. mín
Gult spjald

Nesta Matarr Jobe

Fyrir tveggja fóta tæklingu á Jóhann Birni. Þarna var hann heppinn að fá að ljúka leiknum.
94. mín
Leiknum er lokið með sannfærandi sigri Valsmanna. Umfjöllun og viðtöl koma hér inn bráðlega. Takk fyrir að fylgjast með!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.