0. mín
Komiði sæl og blessuð og verið velkomin í beina textalýsingu frá Valbjarnavelli. Liðin koma innan skamms.
0. mín
Liðin eru komin hérna til hliðar og má sjá þau hér sitthvoru meginn við textann. Athygli vekur að Andri Gíslason fær sér sæti á bekknum eftir mark í síðasta leik, en Þróttarar eru einungis með sex varamenn.
0. mín
Dómari í dag er hinn geðþekki Þórður Már Gylfason og honum til aðstoðar eru þeir Birkir Sigurðarson og Fútsal-dómarinn Andri Vigfússon.
0. mín
Á leið minni upp í blaðamannaskúrinn var Sólmundur Hólm, grínisti, að gúffa í sig hamborgara og með\'í. Sólmundur er mikill Þróttari.
1. mín
Leikurinn er hafinn og það eru Haukar sem byrja með boltann.
2. mín
Ef mann ætla tísta bið ég þá um að nota endilega hash-tagið #fotbolti! Valin tíst munu birtast hér í þessari stórskemmtilegu textalýsingu.
5. mín
Benis Krasniqi í dauðafæri, en Ögmundur lokar búrinu vel.
13. mín
Gult spjald
Karl Brynjar Björnsson
Tæklar Kristján Ómar, en Kristján fellur með tilþrifum. Ís með dýfu kalla menn í stúkunni. Brandarann skilja flestir.15. mín
MAAAARK!
Aron Jóhannsson
MAAAAARK! Aron skorar eftir fyrirgjöf frá vinstri, einn á auðum sjó, en smá heppni að boltinn hafi dottið til hans. Haukarnir búnir að vera betri.16. mín
Guðfinnur Þórir í dauðafæri þrjátíu sekúndum eftir mark Hauka. Boltinn í stöngina, en Guðfinnur gerði vel. Haukar heppnir.
30. mín
InnBjörgvin Stefánsson
ÚtSigurbjörn Hreiðarsson
Sigurbjörn er meiddur og fer af velli.
34. mín
Víti! Boltinn í hendina á leikmanni Hauka innan teig og Guðfinnur Þórir fer á punktinn!
36. mín
Daði ver!!! Guðfinnur lætur Daða verja frá sér og fær frákastið, en skýtur boltanum í slánna. Þvílík dramatík.
45. mín
Fyrri hálfleik lokið í sólinni í Laugardal. Þróttara hafa fengið nokkur góð færi og eigilega skondið að Þróttarar séu ekki kominr á blað.
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn. Hafnfirðingurinn og skemmtikrafturinn, Gunnar Helgason, er mættur og spjallar við mann og annan.
50. mín
Það er nákvæmlega ekkert í gangi í Laugardalnum fagra. Þróttarar ívið sterkari aðilinn, en Haukarnir eru virkilega skeinuhættir.
55. mín
Gult spjald
Björgvin Stefánsson
Mágur Fanndísar Friðriksdóttur, markadrottningar, er kominn í svörtu bókina hjá Þórði dómara.57. mín
InnAnton Bjarnason
ÚtAron Freyr Eiríksson
Nafni minn, Bjarnason, kominn inn á kantinn.
68. mín
Hallur Hallson með hörkuskot eftir skemmtilega útfærslu af aukaspyrnu, en boltinn endar í höndum Daða í markinu.
72. mín
InnAndri Gíslason
ÚtGuðfinnur Þórir Ómarsson
72. mín
InnDaði Bergsson
ÚtVilhjálmur Pálmason
73. mín
InnMagnús Páll Gunnarsson
ÚtEnok Eiðsson
75. mín
Daði Bergsson með hörkuskot eftir að hann fór illa með Kristján Ómar, en boltinn yfir markið.
77. mín
Gult spjald
Magnús Páll Gunnarsson
77. mín
Gult spjald
Erlingur Jack Guðmundsson
85. mín
InnDavíð Stefánsson
ÚtKristján Einar Auðunsson
Kyntröllið Davíð Sigurðsson er kominn inná í miðvörðinn. Erlingur Jack fer þá upp í senterinn og ætla Þróttarar að dæla háum boltum fram.
90. mín
MAAAARK!
Karl Brynjar Björnsson
MAAAAAAARK!! Tvær mínútur komnar í uppbótartíma og Halldór Hilmisson setur boltann inn í teiginn, Karl Brynjar nær að flikka boltanum og boltinn yfir Daða í markinu! Þvílík dramatík!!90. mín
Leik lokið! 1-1 jafntefli. Umfjöllun og viðtöl síðar í kvöld.


