SKÝRSLAN: Nýliðarnir fóru tómhentir af Þórsvelli
Hvað réði úrslitum?
Sóknarlína Þórs lítur rosalega vel út og skóp sigurinn. Síógandi og kannski eina ráðgátan hvernig þeir skoruðu ekki fleiri mörk.
Bestu leikmenn
1. Alvaro Monjeto
Rosalega góður leikmaður og mikilvægur fyrir Þór. Sýndi styrk sinn í dag í flottri sóknarlínu Þórs. Skorar tvö mörk, er hreyfanlegur og vinnusamur. Skapaði helling fyrir samherja sína.
2. Jónas Björgvin Sigurbergsson
Það er hægt að setja ansi marga úr Þórsliðinu hérna og erfitt að velja einn. Jónas var einn af þeim. Síógandi og duglegur fyrir sitt lið. Á líka fanta fyrirgjöf sem skapar mark.
Atvikið
Afturelding var búið að færa sig upp á skaftið eftir að þeir skoruðu og maður hafði það smá á tilfinningunni að þeir gætu jafnað. Nacho skaut þeirri vonarglætu Aftureldingu út um gluggann þegar hann skorar þriðja mark Þórs.
Hvað þýða úrslitin?
Þórsarar fara vel af stað í Inkasso deildinni. Fyrstu þrjú stigin kominn í hús. Afturelding búinn með frumraunina og skjálftinn farinn úr þeim þegar þeir mæta Leiknir R. í næstu umferð.
Vondur dagur
Ef það er hægt að taka einhvern út fyrir sviga þá átti Jökull Jörvar í vandræðum með spræka Þórsarar. Tapaði boltanum nokkrum sinnum á vondum stað.
Dómarinn - 7
Kristinn Freyr hafði fín tök á leiknum. Hélt góðri línu í hörðum leik.



