Fotbolti.net
Jóhann Óli Eiðsson
Pepsi Max-deild karla
Kórinn
Þurrt, logn og vel upplýst eins og vibúið var. Sennilega hlýrra úti samt.
HK
HK
2 - 2
Breiðablik
Breiðablik
Ásgeir Marteinsson 46'1 - 0Björn Berg Bryde 50'2 - 02 - 189' Thomas Mikkelsen2 - 294' Viktor Örn Margeirsson
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Áhorfendur: 1.421

SKÝRSLAN: Blikar rændu HK í uppbótartíma

Hvað réði úrslitum?

HK réð ferðinni allan leikinn. Framan af virtist seigla þeirra og skipulag ætla að gera útslagið en tvö mörk Blika í lokin, úr báðum færum sínum, þýddi að liðin skilja jöfn.

Bestu leikmenn

1. Björn Berg Bryde

Gífurlega traustur í leiknum. Ógnaði sóknarlega og fór mikinn í vörninni. Lítið hægt að setja út á hann í mörkunum tveimur.

2. Ásgeir Marteinsson

Bauð upp á mark og stoðsendingu áður en hann fór út af í stöðunni tvö núll.

Atvikið

Mark Viktors Arnar Margeirssonar á lokamínútum leiksins. Hefði ekki komið til þess hefðu það verið agalega hnýpnir Blikar á leið af vellinum í leikslok.

Hvað þýða úrslitin?

Sem stendur eru Blikar í toppsætinu með fjögur stig enda leikurinn sá fyrsti í annarri umferð. HK er komið á blað en naga sig vafalaust í handarbökin yfir því að stigin séu ekki þrjú.

Vondur dagur

Blikaliðið lék ekki eins og lið sem ætlar sér að vera í toppbaráttu. Í 87 mínútur áttu þeir fá svör gegn sprækum nýliðunum. Grænir geta prísað sig sæla yfir því að fá eitthvað úr leiknum.

Ef taka ætti einhvera út fyrir sviga þá áttu Aron Bjarnason og Höskuldur Gunnlaugsson sérstaklega dapran dag enda var þeim kippt út af snemma í síðari hálfleik.

Dómarinn - 7

Skilaði sínu og hleypti leiknum ekki í vitleysu þegar hitnaði í mönnum undir restina. Helsta sem hægt er að setja út á er framkvæmd aukaspyrnu Breiðabliks í restina.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.