Fotbolti.net
Sævar Ólafsson
Sævar Ólafsson
Inkasso deildin - 1. deild karla
Leiknisvöllur
Leiknir R.
Leiknir R.
4 - 1
Magni
Magni
Sævar Atli Magnússon 14'1 - 0Stefán Árni Geirsson 16'2 - 0Sólon Breki Leifsson 55'3 - 03 - 159' Gunnar Örvar Stefánsson Vuk Oskar Dimitrijevic 82'4 - 1
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Í dag voru það Leiknismenn sem voru magnaðir

Hvað réði úrslitum?

Gæði Leiknisliðsins voru einfaldlega meiri á öllum sviðum leiksins. Magnamenn virkuðu þungir og skrefum á eftir heimamönnum sem litu aldrei um öxl og unnu öruggan sigur

Bestu leikmenn

1. Stefán Árni Geirsson

Sí ógnandi og var Magnamönnum erfiður allan leikinn. Skoraði gott mark og kom að mörgum góðum upphlaupum hjá Leiknismönnum

2. Sólon Breki Leifsson

Að öðrum ólöstuðum þá var það sending hans á Sævar Atla í fyrsta markinu sem gaf tóninn. Var ávallt líklegur og virðist byrja tímabilið ferskur.

Atvikið

Sending Sólons Breka í fyrsta markinu. Þræddi nálaraugað og braut á bak aftur Magnamenn. Eftir markið voru þeir vankaðir og fengu í kjölfarið á sig annað mark sem braut þá nánast algjörlega.

Hvað þýða úrslitin?

Akkurat byrjunin sem Leiknismenn voru að sækjast eftir. 3 stig. Fullt af færum og blússandi hreyfing á boltanum. Magnamenn hinsvegar eiga langt í land og þurfa að byrja á langri bílferð norður.

Vondur dagur

Nær allt Magnaliðið í raun. Fáir bjartir blettir heilt yfir. Liðið sigldi á sker í dag. Voru slitnir varnarlega og skrefi ef ekki skrefum á eftir sprækum Leiknismönnum.

Dómarinn - 8

Jóhann Ingi fékk ekki erfiðasta verkefni Íslandssögunnar en það þarf að klára slík verkefni og það gerði hann með sóma.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.