SKÝRSLAN: Fyrsti sigur Valsara kom í Árbænum
Hvað réði úrslitum?
Valsarar skora snemma leiks og verjast síðan vel. Flóknara er það ekki. Fylkismenn mættu ekki til leiks fyrstu tuttugu en voru betri í seinni hálfleik. Hefði getað dottið báðum megin.
Bestu leikmenn
1. Orri Sigurður Ómarsson
Skorar markið sem að skilur liðin að og heldur markinu hreinu. Það er ekki hægt að biðja um mikið meira frá miðverði.
2. Ólafur Ingi Skúlason
Það munar svo rosalega um þennan gæja. Haltraði síðasta korterið en náði samt að valda usla. Frábær leikmaður.
Atvikið
Hákon Ingi skoraði mark sem að var dæmt af vegna rangstöðu. Helgi Sig vildi meina að það hafi verið rangur dómur en ég er ekki svo viss.
Hvað þýða úrslitin?
Langþráður sigur hjá Íslandsmeisturunum kom í Árbænum. Þeir eru þá komnir með fjögur stig. Þetta var þá einnig fyrsta tap Fylkis sem að eru með fimm stig.
Vondur dagur
Ragnar Bragi sást ekki í þessum leik og má Fylkir ætlast til meira af þessum góða leikmanni.
Dómarinn - 4,5
Einar Ingi var langt frá því að vera frábær í dag. Manni leið a köflum eins og að hann bæri of mikla virðingu fyrir Valsliðinu. Það er ekki í lagi.



