SKÝRSLAN: Tvö mörk og rautt spjald í Safamýrinni
Hvað réði úrslitum?
Færanýting liðanna gerði það að verkum að hvorugt liðið náði að stela sigrinum.
Bestu leikmenn
1. Matthías Kroknes Jóhannsson (Fram)
Matti var virkilega öflugur fyrir heimamenn bæði varnarlega og sóknarlega, átti margar flottar fyrirgjafir og var eins og rennilás upp og niður hægri vænginn.
2. Ísak Jónsson (Haukar)
Ísak var virkilega flottur á miðjunni hjá Haukum, skoraði markið, bjó til dauðafæri fyrir Daða og var nálægt því að skora sigurmarkið!
Atvikið
Marcao hleypur í Da Silva og slær hann frá mínu sjónarhorni, eftir að dómarinn dæmdi Da Silva brotlegan fyrir hendi...
Hvað þýða úrslitin?
Fram er komið með 4 stig í 4. sæti deildarinnar meðan Haukar sitja í 9. sæti með 2 stig.
Vondur dagur
Marcao verður að taka þetta á sig, hrikalega klaufalegt að láta reka sig útaf eftir að dómarinn hafði dæmt hendi á andstæðinginn.
Dómarinn - 5
Dómarinn var fínn framan af, en eftir að Már á að flestra mati að fá víti þegar hann stendur af sér brot og klúðrar færi fór aðeins að halla undan fæti, svo fær Marcao réttmætt rautt en Arnar missti tökin svolítið á leiknum eftir það og furðulegir dómar fóru að falla í allar áttir.



