Fotbolti.net
Sverrir Örn Einarsson
Pepsi Max-deild karla
Mustad völlurinn
Völlurinn geggjaður, blautt og hægur vindur
Grindavík
Grindavík
1 - 0
Fylkir
Fylkir
Josip Zeba 74'1 - 0
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Myndir: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Leik lokið!
Grindjánar halda þetta út og landa stórum 3 stigum!
90. mín
+3 Fylkismönnum liggur á. Allir á vallarhelming Grindavíkurn nema Aron
90. mín
+2 Vladan grípur það
90. mín
+1 Fylkir fær horn
90. mín
Það eru 4 mínútur í uppbótartíma
Grindavík
87. mín
InnKiyabu Nkoyi
ÚtVladimir Tufegdzic
Tufa verið duglegur í dag.
86. mín
Castillion í færi en McAusland bjargar með frábærri tæklingu. Miðverðir Grindavíkur verið frábærir í dag.
Grindavík
83. mín
InnJón Ingason
ÚtAlexander Veigar Þórarinsson
Grindavík þéttir raðirnar til baka
82. mín
Vladan liggur eftir samstuð og virðist hafa meiðst eitthvað en stendur upp og heldur leik áfram.
81. mín
Fylkismenn í færi í þvögunni eftir hornspyrnu fær Orri skallann en Josip Zeba bjargar á línu sýnist mér
Fylkir
80. mín
InnOrri Sveinn Stefánsson
ÚtAndrés Már Jóhannesson
Orri Sveinn settur fram
Grindavík
80. mín
Gult spjald

Alexander Veigar Þórarinsson

Togar Castillion niður í skyndisókn. Tekur spjaldið á sig.
Grindavík
78. mín
InnDagur Ingi Hammer Gunnarsson
ÚtRené Joensen
Hammer fær að djöflast síðustu mínúturnar
Grindavík
74. mín
MAAAARK!

Josip Zeba

MAAAAAARK!!!!!!

Hornspyrna Arons Jó skoppar af allavega 2 höfðum áður en Zeba kemur boltanum í netið af fjærstönginni.
73. mín
Tamburini í færi en alltof lengi að ákveða hvað hann ætlar að gera og Ásgeir bjargar í horn.
Fylkir
71. mín
InnGeoffrey Wynton Mandelano Castillion
ÚtHákon Ingi Jónsson
66. mín
Ásgeir með skalla eftir horn en töluvert framhjá.
61. mín
McAusland í dauðafæri eftir aukaspyrnu en Ásgeir verður fyrir skotinuþ.
Fylkir
61. mín
Gult spjald

Daði Ólafsson

Brýtur á René. Ekki sáttur með það en uppsker gult spjald.
Fylkir
60. mín
InnRagnar Bragi Sveinsson
ÚtArnór Gauti Ragnarsson
Arnór Gauti átt í basli varnarlega.
58. mín
Stórhætta í teig Fylkis, Alexander sendir Tufa einn í gegn en hann reynir að koma boltanum fyrir en varnarmaður nær til boltans og horn niðurstaðan.

Alexander tekur hornið og setur hann afturfyrir aftur. 3 af 3 afturfyrir hjá honum í dag.
55. mín
Skyndisókn hjá Grindavík, Tamburini stingur Arnór Gauta af setur hann á Alexander sem framlengir á René sem á skotið úr ágætri stöðu en yfir fer boltinn.
51. mín
Þvílík björgun hjá McAusland, Ömurleg sending út á vinstri væng hjá Grindavík sem Arnór Gauti hirðir setur boltann inn á Valdimar í frábæru færi en McAusland hendir sér fyrir og bjargar.
49. mín
Rólegt í upphafi. Fylkir fær horn.
46. mín
Farið af stað á ný, 45 mínútur eftir og vonandi að það séu mörk í þessu.
45. mín
Hálfleikur
McAusland skallar frá og Vilhjálmur flautar til hálfleiks.

Mjög svo kaflaskipt, Fylkir byrjaði af gríðarlegum krafti en Grindavík vann sig inn í leikinn og tók hann svo yfir um tíma. En heilt yfir nokkuð jafnt og lítið um fallegan fótbolta sem er miður. En vonandi að breyting verði á í síðari hálfleik.
45. mín
45 á klukkunni og fylkir fær horn.
42. mín
Kolbeinn heppinn hreinsar í öfuga átt en Ásgeir nær að koma boltanum frá.
40. mín
Klafs við teig Grindavikur endar með því að Kolbeinn skóflar boltanum yfir úr ágætis færi.
38. mín
Aðalógn Grindavíkur hefur komið af vinstri vængnum. Arnór Gauti virðist ráða illa við Tamburini þegar hann kemur á ferðinni en Grindavík ekki náð að nýta sér það hingað til.
32. mín
Mikil harka og nóg af návígum í leiknum núna en fótboltinn svolítið á undanhaldi.
27. mín
Vá þetta var lélegt Alexander tekur hornið stutt en setur það beint afturfyrir aftur. Endurtek stutt horn en afturfyrir.
27. mín
René í færi en Daði með geggjaða tæklingu og kemst fyrir skotið. horn.
24. mín
Arnór Gauti með skallann eftir fyrirgjöf frá Valdimar en framhjá.
18. mín
Skorar ekki nema þú reynir en þetta var bjartsýnt hjá Aroni af 30 metrum. Vel yfir.
Grindavík
15. mín
Gult spjald

Gunnar Þorsteinsson

Óþarfi hjá Gunnari sem togar í Hákon og stoppar sókn.
14. mín
Spyrnan beint í vegginn og Fylkir hreinsar
Fylkir
13. mín
Gult spjald

Andrés Már Jóhannesson

Tamburini á feikna spretti við vítateiginn og Andrés tekur hann niður. Aukaspyrna á hættulegum stað.
12. mín
Fylkir í skyndisókn og Grindavík fáliðaðir til baka en slöpp fyrirgjöf frá Hákoni siglir yfir allt og alla.
11. mín
Grindavík komst yfir miðju í fyrsta sinn í dag og vinnur hornspyrnu.
10. mín
Sturlað spil hjá Fylki og boltinn í netið en flaggaðir rangstæðir. Kolbeinn líklega flaggaður rangstæður og markið stendur því ekki. En spilið var frábært.
8. mín
Valdimar með skot yfir úr teignum eftir hornspyrnu Andrésar. Náði ekki að halda honum niðri.
3. mín
Vladan öruggur og grípur hornið.
2. mín
Daði með fyrirgjöf sem Rodrigo skallar í horn.
1. mín
Gestirnir ekkert að tvínóna við þetta, bruna í sókn og þjarma að heimamönnum. Vladan grípur loks inní.
1. mín
Þetta er farið af stað hér á Mustad Vellinum. Það ery gestirnir sem hefja leik og sækja í átt til sjávar.
Fyrir leik
15 mín í leik. Liðin farinn inní klefa og þetta fer allt að bresta á.
Fyrir leik
Byrjunarliðin mætt hér til hliðar. Sýnist Grindavík tefla fram óbreyttu liði frá sigrinum á KR.

Fylkir gerir fjórar breytingar. Castillion, Ólafur Ingi, Orri Rafn og Ragnar Bragi víkja úr byrjunarliðinu fyrir þá Andrés Má, Hákon Inga, Valdmar Þór og Kolbeinn Finsson.
Fyrir leik
Grindavík og Fylkir hafa mæst 28 sinnum í efstu deild.

Grindavík hefur unnið 9 leiki, 4 hafa endað með jafntefli en Fylkir er með 15 sigra.

Þegar liðin mættust í Grindavík í fyrra þá unnu heimamenn 2-1 sigur.
Fyrir leik
Grindavík kom öllum á óvart í síðustu umferð og vann 2-1 sigur gegn KR. Liðið er með fimm stig eftir fjórar umferðir. Fylkismenn töpuðu 0-1 á heimavelli gegn Val í síðustu umferð og eru einnig með fimm stig.

Dýrmæt stig sem eru í boði hérna í kvöld!
Fyrir leik
Gott og gleðilegt kvöld! Það eru þrír leikir í Pepsi Max-deildinni í kvöld. Þar á meðal er viðureign Grindavíkur og Fylkis á Mustad vellinum!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.