Fotbolti.net
Þorgeir Leó Gunnarsson
Þorgeir Leó Gunnarsson
Pepsi Max-deild karla
Meistaravellir
KR
KR
3 - 2
HK
HK
Pálmi Rafn Pálmason 20'1 - 0Tobias Bendix Thomsen 45'2 - 0Björgvin Stefánsson 54'3 - 065' Brynjar Jónasson (misnotað víti)3 - 186' Birkir Valur Jónsson 3 - 287' Kári Pétursson
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Myndir: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

SKÝRSLAN: Spennandi lokamínútur í Vesturbænum

Hvað réði úrslitum?

Gæði KR í fyrri hálfleik fóru langt með að klára leikinn í dag. Óskar Örn var gjörsamlega frábær. KR nýttu sín færi á meðan HK-ingar hefðu eflaust viljað ná inn fyrsta marki sínu aðeins fyrr. Því miður kom þetta of seint frá gestunum.

Bestu leikmenn

1. Óskar Örn Hauksson

Ótrúlega flottur leikur hjá fyrirliðanum. Hann er greinilega í hörkustandi og var mjög skapandi í dag.

2. Björgvin Stefánsson

Björgvin var gríðarlega duglegur í dag og vann vel fyrir liðið. Skoraði gott mark og nýtti styrk sinn frábærlega. Meira svona!

Atvikið

Markið hjá Kára Péturssyni á 87 mín hleypti miklu lífi í lokamínúturnar á leiknum. Þetta var gríðarlega fallegt mark, skrúfaði hann fyrir utan teig alveg upp í bláhornið. Alveg óverjandi fyrir Beiti í marki KR.

Hvað þýða úrslitin?

KR fer í 4.sæti deildarinnar og stimplar sig aftur inn eftir tap í síðustu umferð. HK eru enn í 10.sæti deildarinnar en geta þó tekið margt jákvætt úr leiknum hér í kvöld.

Vondur dagur

Brynjar Jónasson fær heiðurinn í dag. Sást lítið í leiknum og klúðraði svo víti á mikilvægum tímapunkti í leiknum. Mark þar hefði jafnvel skipt sköpum fyrir endurkomu HK.

Dómarinn - 8

Sigurður Hjörtur stóð sig vel í dag. Var með stórar ákvarðanir á hreinu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.