SKÝRSLAN: Endurkoma Lennon tryggði FH sigur á Val í háspennuleik
Hvað réði úrslitum?
Steven Lennon. Innkoma hans breytti leiknum. Skoraði annað mark FH og lagði upp sigurmarkið.
Bestu leikmenn
1. Steven Lennon
Kom inná í fyrsta sinn í sumar, skoraði eitt og lagði upp annað. Ef hann verður í þessum ham verða FH Íslandsmeistarar.
2. Ólafur Karl Finnsen
Óli Kalli var mjög góður í dag. Miðja Vals spilaði vel með hann í fararbroddi og hann skapaði mikinn usla. Lagði upp fyrra markið og skoraði það síðara með mjög góðum skalla.
Atvikið
Vítið sem FH fær. Valur voru búnir að vera með yfirhöndina í leiknum síðustu 20 mínúturnar áður en FH fékk víti þegar Orri braut klaufalega af sér og þannig komst FH yfir í leiknum.
Hvað þýða úrslitin?
FH fer í 3.sætið með 10 stig, jafn mörg stig og Blikar í 2.sætinu og eru 3 stigum frá toppliði ÍA. Valur er í alvöru krísu, aðeins 4 stig í 9.sæti jafn mörg stig og HK í 10.sætinu eftir 5 umferðir.
Vondur dagur
Orri Sigurður Ómarsson.
Orri kom FH á bragðið með gjörsamlega glórulausri bakhrindingu á Birni Daníel sem var algjör óþarfi. Fá á sig 3 mörk í dag Valur og Orri var ekki að eiga góðan dag.
Orri kom FH á bragðið með gjörsamlega glórulausri bakhrindingu á Birni Daníel sem var algjör óþarfi. Fá á sig 3 mörk í dag Valur og Orri var ekki að eiga góðan dag.
Dómarinn - 9
Ívar með toppframmistöðu. Vítadómurinn réttur og var með góð tök á leiknum heilt yfir. Meira svona í sumar takk.



