Fotbolti.net
Sverrir Örn Einarsson
Pepsi Max-deild karla
Mustad völlurinn
Völlurinn geggjaður, blautt og hægur vindur
Grindavík
Grindavík
1 - 0
Fylkir
Fylkir
Josip Zeba 74'1 - 0
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Myndir: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

SKÝRSLAN: Grjótharðir Grindjánar hirtu stigin

Hvað réði úrslitum?

Barátta heimamanna var mögnuð. Eftir erfiðar upphafsmínútur settu þeir í gír og mættu Fylkismönnum af hörku. Uppskáru mark eftir fast leikatriði og sigldu þremur stigum í höfn.

Bestu leikmenn

1. Josip Zeba

Frábær í vörn heimamanna skallaði boltann oftar en ég get talið frá og var traustur til baka. Kórónaði góðan leik með marki.

2. Marc McAusland

Gríðarlega traustur sömuleiðis í vörn Grindavíkur bjargaði tvisvar með frábærum tæklingum og -var heilt yfir frábær í kvöld.

Atvikið

Markið fær þann heiður í kvöld en einnig er vert að minnast á það að Grindavík komst varla yfir miðju fyrstu 10 mínútur leiksins.

Hvað þýða úrslitin?

Grindavík situr í 6 sæti með 8 stig eins og Stjarnan og KR en Fylkir situr eftir í því 8 með 5. svo einfalt er það.

Vondur dagur

Helgi Sig nagar sig sennilega í handarbökin að hans menn hafi ekki látið kné fylgja kviði eftir gríðarlega kraftmikla byrjun að þeirra hálfu.

Verð líka að minnast á þrjár hornspyrnur Alexanders Veigar sem enduðu afturfyrir. Ef þú tekur stutta hornspyrnu sem fer afturfyrir þá ertu að gera eitthvað rangt.

Dómarinn - 8

Vilhjálmur gerði vel í dag. Leyfði leiknum að fljóta og stýrði honum af röggsemi.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.