
Víkingur Ó.
2
0
Þór

Jacob Andersen
'8
1-0
1-0
Nacho Gil
'20
, misnotað víti

Harley Willard
'40
2-0
24.05.2019 - 19:15
Ólafsvíkurvöllur
Inkasso deildin - 1. deild karla
Aðstæður: Sól, blíða og blankalogn
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Áhorfendur: 225
Maður leiksins: Emir Dokara
Ólafsvíkurvöllur
Inkasso deildin - 1. deild karla
Aðstæður: Sól, blíða og blankalogn
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Áhorfendur: 225
Maður leiksins: Emir Dokara
Byrjunarlið:
1. Franko Lalic
2. Ívar Örn Árnason
3. Michael Newberry
5. Emmanuel Eli Keke
7. Grétar Snær Gunnarsson
8. Martin Cristian Kuittinen
('72)

9. Jacob Andersen
('75)


10. Sorie Barrie
11. Harley Willard
('90)


13. Emir Dokara
22. Vignir Snær Stefánsson

Varamenn:
12. Baldur Olsen (m)
6. James Dale
7. Ívar Reynir Antonsson
('90)

14. Sallieu Capay Tarawallie
('75)

17. Kristófer Jacobson Reyes
21. Pétur Steinar Jóhannsson
23. Stefán Þór Pálsson
('72)

Liðsstjórn:
Ejub Purisevic (Þ)
Suad Begic
Kristján Björn Ríkharðsson
Einar Magnús Gunnlaugsson
Harpa Finnsdóttir
Gul spjöld:
Vignir Snær Stefánsson ('58)
Rauð spjöld:
90. mín
Gult spjald: Jónas Björgvin Sigurbergsson (Þór )

+3
Allt annað en sáttur að fá ekki aukaspyrnuna og hætti ekki að tuða í Jóhanni fyrr en hann fékk spjaldið
Allt annað en sáttur að fá ekki aukaspyrnuna og hætti ekki að tuða í Jóhanni fyrr en hann fékk spjaldið
90. mín
+3
Öflug skyndisókn hjá gestunum í lokin en misstu boltann frá sér í hendur Franko en voru allt annað en sáttir og heimtuðu aukaspyrnu sem þeir fengu ekki
Öflug skyndisókn hjá gestunum í lokin en misstu boltann frá sér í hendur Franko en voru allt annað en sáttir og heimtuðu aukaspyrnu sem þeir fengu ekki
90. mín

Inn:Ívar Reynir Antonsson (Víkingur Ó.)
Út:Harley Willard (Víkingur Ó.)
+2
Lokaskipting þessa leiks
Lokaskipting þessa leiks
90. mín
+1
Emir Dokara er ekkert að spara taktana núna. Fannar Daði pressaði hátt á hann og tók Emir létta gabbhreyfingu og skildi hann eftir
Emir Dokara er ekkert að spara taktana núna. Fannar Daði pressaði hátt á hann og tók Emir létta gabbhreyfingu og skildi hann eftir
90. mín
Leikmenn beggja liða virka hálf þreytulegir núna og virðast allir vera búnir að sætta sig við úrslitin
88. mín
Sallieu er búinn að vera sprækur eftir að hann kom inná en hann og Harley eru ekki alveg að ná að tengja
86. mín
Sveinn var í baráttu við Grétar í teignum og fór boltinn af Sveini og afturfyrir. Jóhann Ingi dæmdi markspyrnu sem fór ekkert sérstaklega vel í Svein. Lét aðstoðardómarann gjörsamlega heyra það
84. mín
Gestirnir eru miklu betri aðilinn um þessar mundir og ætla lærissveinar Greggs klárlega ekki að gefast upp
82. mín

Inn:Alexander Ívan Bjarnason (Þór )
Út:Sigurður Marinó Kristjánsson (Þór )
Þriðja og síðata breyting Þórsara
80. mín
Vegan Vignir með frábæra rispu upp hægri kantinn en sendingin frá honum var afleit og beint í hendurnar á Aroni Birki
77. mín
Harley tók aukaspyrnu fyrir Víkinga á miðjum vellinum. Boltinn skoppaði af þessum og hinum áður en boltinn datt aftur fyrir Harley. Skot hans af varnarmanni og útaf í horn.
Hornið var stór hættulegt en boltinn endaði á fjærstönginni þar sem Eli Keke var hársbreidd frá því að bæta við þriðja makinu
Hornið var stór hættulegt en boltinn endaði á fjærstönginni þar sem Eli Keke var hársbreidd frá því að bæta við þriðja makinu
75. mín

Inn:Sallieu Capay Tarawallie (Víkingur Ó.)
Út:Jacob Andersen (Víkingur Ó.)
Sallieu kemur inn fyrir markaskorarann Jacob
72. mín

Inn:Fannar Daði Malmquist Gíslason (Þór )
Út:Jóhann Helgi Hannesson (Þór )
Einnnig gera Þórsarar breytingu. Fyrirliðinn af velli og Sveinn Elías tekur við bandinu
72. mín

Inn:Stefán Þór Pálsson (Víkingur Ó.)
Út:Martin Cristian Kuittinen (Víkingur Ó.)
Víkingar gera breytingu
70. mín
Leikurinn búinn að róast mjög mikið núna síðustu mínútur. Bæði lið eru svona næstum því að ná að búa til sóknir
67. mín
Víkingar eru búnir að vera færa sig ofar á völlinn síðustu mínútur. Fá hér sína þriðju hornspyrnu á stuttum tíma
65. mín
Martin og Harley eru að bjóða uppá smá veislu á vellinum. Gífurlega leiknir menn sem elska að fara framhjá mönnum og gera það vel.
60. mín
Gult spjald: Hermann Helgi Rúnarsson (Þór )

Olnbogaskot í hausinn á Grétari Snæ. Uppsafnað spjald
58. mín
Gult spjald: Vignir Snær Stefánsson (Víkingur Ó.)

ÚFF. Þetta var virkilega vont að sjá frá Jóhanni Inga og hans aðstoðarmönnum. Aðstoðardómarinn hleypir Vigni inná sem vinnur boltann. Jóhann flautar strax og spjaldar Vegan Vigni. Mikið samskiptaleysi hjá dómurum leiksins sem kostar Vigni spjald
57. mín

Inn:Sveinn Elías Jónsson (Þór )
Út:Jakob Snær Árnason (Þór )
Fyrsta skipting leiksins komin og það eru gestirnir sem eiga hana
56. mín
Vegan Vignir sendur af velli af Jóhanni dómara. Líklegast eitthvað blóð um að ræða
54. mín
Martin nælir í aukaspyrnu af ca 35 metra færi. Leikmenn Þórs eru ekki að höndla hraðann og vinnusemina sem hann býður uppá
52. mín
Gestirnir hafa byrjað þennan síðari hálfleik frábærlega en eina sem stendur í vegi fyrir þeim og marki eru Michael Newberry, Eli Keke og Emir Dokara. Allir þrír eru búnir að vera magnaðir í leiknum
48. mín
Leit út fyrir að vera öflug skyndisókn í gangi hjá Víkingum. Grétar missti boltann hins vegar aftur fyrir sig og gestirnir komu mönnum til baka og ekkert varð úr sókninni
46. mín
Martin, pólski Finninn eins og hann er kallaður í Ólafsvík hefur reynst Jakobi Snæ virkilega erfiður í leiknum. Virkilega drjúgur kantmaður sem hleypur fyrir allan peninginn
44. mín
Myndatökumaður frá MBL var að sýna mér vítaspyrnuna sem Jacob náði í fyrir Víkinga. Eftir að hafa séð þær myndir er mér nokkuð ljóst að alltaf var um vítaspyrnu að ræða. Frá mínu sjónahorninu mínu úr fjölmiðlaboxinu sýndist mér hann taka boltann en svo var ekki.
42. mín
Michael Newberry hefur verið hreint út sagt magnaður í þessum leik til þessa. Yfirvegaður á bolta og fáir komast framhjá honum
40. mín
MARK!

Harley Willard (Víkingur Ó.)
Stoðsending: Jacob Andersen
Stoðsending: Jacob Andersen
Harley slúttar örugglega í hægra hornið. Hann bjó til færið fyrir Jacob sem leiddi til vítaspyrnunnar.
Jacob ætlaði að fara framhjá Aroni Birki sem að mínu mati tók boltann en Jóhann Ingi var ekki á sama máli og benti á punktinn
Jacob ætlaði að fara framhjá Aroni Birki sem að mínu mati tók boltann en Jóhann Ingi var ekki á sama máli og benti á punktinn
33. mín
Jakob Snær liggur sárþjáður á miðjum vallarhelming Þórs en Grétar Snær var ekkert á því að koma boltanum útaf. Keyrði upp völlinn og kom boltanum á Harley sem reyndi misheppnaða fyrirgjöf. Loftur sparkaði boltanum frá en beint á Sorie Barrie sem negldi boltanum beint útaf áður en hann skammaði liðsfélaga sína fyrir að gera ekki slíkt hið sama
31. mín
Stórhættuleg fyrirgjöf frá hægri kantinum hjá gestunum. Jóhann Helgi fann pláss en Michael rétt náði að teygja ennið í boltann og koma boltanum í horn
28. mín
Vegan Vignir rangstæður. Mjög klaufalegt þar sem hann var alveg óvaldaður en tók hlaupið alltof snemma
27. mín
Martin krækir í aukaspyrnu á miðjum vallarhelming Þórsara eftir að Nacho kippti honum niður. Harley undirbýr fyrirgjöf
25. mín
Virkilega jafn leikur í alla staði. Hvorugt liðið búin að fá mörg marktækifæri og varnir beggja liða standa vaktina vel so far
22. mín
Vegan Vignir með hrikalega dýfu. Þekki kauða vel og veit að hann elskar að fá sér ís með dýfu...kannski of mikið?
20. mín
Misnotað víti!

Nacho Gil (Þór )
JAHÁ!!
Maðurinn sem skoraði úr tveimur vítaspyrnum í síðasta leik setur boltann framhjá markinu með afleitri spyrnu.
Maðurinn sem skoraði úr tveimur vítaspyrnum í síðasta leik setur boltann framhjá markinu með afleitri spyrnu.
19. mín
Þór fá vítaspyrnu!!!!
Ég sá ekki hvað gerðist þarna. Verð að viðurkenna það. Hornspyrna sem Þórsarar áttu og einhver féll í teignum eftir samskipti við einhvern annan. það er eina sem ég get sagt um málið
Ég sá ekki hvað gerðist þarna. Verð að viðurkenna það. Hornspyrna sem Þórsarar áttu og einhver féll í teignum eftir samskipti við einhvern annan. það er eina sem ég get sagt um málið
18. mín
Sendingin var frábær inná teiginn en Vegan Vignir náði að kasta sér fyrir boltann. Tók hann með maganum
17. mín
Þórsarar fá aukaspyrnu við vítateigshornið eftir að Emir fór í tæklingu á Alvaro.
13. mín
Ein sú skrautlegasta björgun sem ég hef séð lengi! Aron Birkir greip fyrirgjöf frá Harley örugglega og reyndi að koma boltanum strax í leik með markspyrnu í átt að Jóhanni Helga. Eli Keke rann þegar hann var að bakka en náði samt einhvernveginn að teygja sig fram og einhvernveginn detta með hausinn akkúrat þar sem boltinn var að fara lenda. Jóhann Helgi hefði verið sloppinn í gegn ef Eli Keke hefði ekki náð þessari snertingu
12. mín
Gult spjald: Aron Kristófer Lárusson (Þór )

Skellti Vegan Vigni í jörðina sem var að keyra upp hægri kantinn
9. mín
Þórsarar reyna að svara strax fyrir. Fengu aukaspyrnu á miðjunni eftir að Michael gerðist brotlegur. Jónar fleytti boltanum inn í boxið en Eli Keke kom boltanum frá
8. mín
MARK!

Jacob Andersen (Víkingur Ó.)
Stoðsending: Ívar Örn Árnason
Stoðsending: Ívar Örn Árnason
Þetta tók ekki langan tíma!
Hornspyrna sem Martin tók. Víkingar voru mjög fámannaðir í vítateig Þórsara en Ívar Örn stökk manna hæst og skallaði að markinu þar sem Jacob potaði honum inn eins og ekta senter ætti alltaf að gera
Hornspyrna sem Martin tók. Víkingar voru mjög fámannaðir í vítateig Þórsara en Ívar Örn stökk manna hæst og skallaði að markinu þar sem Jacob potaði honum inn eins og ekta senter ætti alltaf að gera
6. mín
Sendingin var stórfengleg á fjær þar sem Aron Kristófer var aleinn en Ívar náði að koma sér fyrir
3. mín
Víkingar eiga fyrsta marktækifæri leiksins. Grétar Snær fékk boltann fyrir utan teiginn en skotið hans var það slakt að það hefði samt farið framhjá þó markið væri tífalt stærra
Fyrir leik
Það verður spennandi að sjá hvernig Vignir Snær leikmaður Víkinga spókar sig í leiknum í dag en undanfarið hefur hann verið að taka breytingar á sínum lífsstíl. Nokkuð ljóst að hann sé byrjaður að lýta eitthvað upp til Bergsveins Ólafssonar leikmanns Fjölnis. Bergsveinn er oft kallaður Bauna Beggi eftir að hann varð Vegan. Vignir hefur tekið þá ákvörðun að gera slíkt hið sama en undirritaður komst að því í gær þegar Vignir eða "Vegan-Vignir" ákvað að fá sér Vegan fæði í gærkvöldi. Héðan í frá í textalýsingunni verður hann kallaður Vegan-Vignir
Fyrir leik
Víkingar halda óbreyttu byrjunarliði frá síðasta leik þegar liðið sótti 3 punkta í Laugardalinn gegn Þrótti. Víkingar hafa safnað 7 stigum úr fyrstu 3 leikjunum með sigrum gegn Gróttu ásamt Þrótti og jafntefli gegn Haukum á Ásvöllum.
Þór byrjaði vel með sterkum sigrum gegn nýliðunum í Aftureldingu ásamt því að sigra Njarðvík sunnan með sjó. Í síðustu umferð fór hins vegar ekki allt eins og það átti að fara hjá strákunum hans Gregg en liðið tapaði fyrir hinum nýliðum deildarinnar á heimavelli. Grótta sigraði leikinn 3-2 en leikurinn bauð upp á 3 vítaspyrnur. Bæði mörk Þórsara komu af punktinum en einnig fengu Gróttumenn víti í fyrri hálfleiknum.
Þór byrjaði vel með sterkum sigrum gegn nýliðunum í Aftureldingu ásamt því að sigra Njarðvík sunnan með sjó. Í síðustu umferð fór hins vegar ekki allt eins og það átti að fara hjá strákunum hans Gregg en liðið tapaði fyrir hinum nýliðum deildarinnar á heimavelli. Grótta sigraði leikinn 3-2 en leikurinn bauð upp á 3 vítaspyrnur. Bæði mörk Þórsara komu af punktinum en einnig fengu Gróttumenn víti í fyrri hálfleiknum.
Fyrir leik
víkingarnir frá ólafsvík unnu báðar viðureignirnar á siðasta ári 2-0. þórsarar ætla eflaust að reyna að gera þetta árið og reyna að hrifsa einhver stig héðan af ólafsvíkurvelli.
Byrjunarlið:
1. Aron Birkir Stefánsson (m)
4. Hermann Helgi Rúnarsson

5. Loftur Páll Eiríksson
8. Jónas Björgvin Sigurbergsson

8. Aron Kristófer Lárusson

9. Jóhann Helgi Hannesson (f)
('72)

10. Sigurður Marinó Kristjánsson
('82)

14. Jakob Snær Árnason
('57)

24. Alvaro Montejo
30. Bjarki Þór Viðarsson
88. Nacho Gil
- Meðalaldur 5 ár
Varamenn:
2. Tómas Örn Arnarson
2. Elmar Þór Jónsson
6. Páll Veigar Ingvason
12. Aron Ingi Rúnarsson
18. Alexander Ívan Bjarnason
('82)

Liðsstjórn:
Sveinn Elías Jónsson (Þ)
Gregg Ryder (Þ)
Fannar Daði Malmquist Gíslason
Guðni Þór Ragnarsson
Kristján Sigurólason
Perry John James Mclachlan
Fergus Mathews
Gul spjöld:
Aron Kristófer Lárusson ('12)
Hermann Helgi Rúnarsson ('60)
Jónas Björgvin Sigurbergsson ('90)
Rauð spjöld: