Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
   lau 06. júní 2026 10:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Olise orðaður við Real Madrid - Ætla að halda Diomande
Powerade
Michael Olise
Michael Olise
Mynd: EPA
Yan Diomande
Yan Diomande
Mynd: EPA
Slúðurpakki dagsins er kominn í hús. Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu.

Real Madrid mun bjóða 130 milljónir punda í Michael Olise, 24, leikmann Real Madrid, ef Florentino Perez vinnur forsetakosningarnar. (Telegraph)

Arne Slot, fyrrum stjóri Liverpool, sem var rekinn frá félaginu í síðustu viku hefur hafnað því að verða næsti stjóri Fulham eftir að Marco Silva tilkynnti að hann muni yfirgefa félagið. (Talksport)

Ekkert virðist verða úr kaupum Barcelona á argentíska framherjanum Julian Alvarez og Atletico Madrid er að undirbúa næsta tímabil með honum. Arsenal hefur einnig áhuga en hann er ekki spenntur fyrir för til Lundúna. (Cadena Ser)

Liam Delap, 23, framherji Chelsea, gæti farið til Fulham ef Kieran McKenna, fyrrum stjóri hans, tekur við af Marco Silva. (Talksport)

Oliver Glasner, fyrrum stjóri Crystal Palace, er að vinna Mauricio Pochettino í baráttunni um starfið hjá AC Milan. (Gazzetta dello Sport)

Rafael Leao, sóknarmaður Milan, 26, segist þurfa nýja áskorun og hann telur að enska og spænska deildin henti sér vel. (Sport TV)

Það er bjartsýni í herbúðum Leipzig að hinn 19 ára gamli Yan Diomande verði áfram hjá félaginu þrátt fyrir vaxandi áhuga Liverpool á honum. (Teamtalk)

Newcastle er nálægt því að klára fyrstu kaupin í sumar eftir að hafa Reims samþykkti 24 milljón punda tilobð í franska markmanninn Ewen Jaouen, 20. (Northern Echo)

Roberto de Zerbi, stjóri Tottenham, vill losa sig við króatíska varnarmanninn Luka Vuskovic, 19, í sumar. (Football Insider)

Hull er að kanna möguleikann á að fá hinn 19 ára gamla Luis Fernando Carrera, vængmann Deportivo Tachira, í sumar og lána hann til NK Maribor. (Sky Sports)

Everton hefur sett sig í samband við Middlesbrough um kaup á enska miðjumanninum Hayden Hackney, 23, en félögin eru langt frá samkomulagi. (Teesside Live)

Barcelona ætlar að kaupa Marc Cucurella, 27, frá Chelsea, ef félagið selur Alejandro Balde, 22, í sumar. (Marca)
Slapp
banner
banner