Fotbolti.net
@EgillSiEgill Sigfússon
Egill Sigfússon
KR
KR
Pepsi Max-deild karla
Meistaravellir
Heiðskýrt, sól og gola
2 - 0
Breiðablik
Breiðablik
Kristinn Jónsson 8'1 - 0Óskar Örn Hauksson 61'2 - 0
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: KR með 4 stiga forskot á toppi deildarinnar

Hvað réði úrslitum?

Fyrsta markið hjá Kidda Jóns. Fyrsta markið kom KR á bragðið þar sem Kiddi tók varnarmenn Blika í bakaríið og smurði boltann svo út í bláhornið.

Bestu leikmenn

1. Kristinn Jónsson

Kiddi naut sín í botns á móti fyrrum félögum sínum. Skoraði glæsilegt mark og var öflugur í vörn og sókn. Lang bestur í kvöld.

2. Óskar Örn Hauksson

Óskar var eins og oft áður með bestu mönnum vallarins. Fór oft á tíðum illa með varnarmenn Blika og þeir þurftu að sparka hann niður trekk í trekk sem endaði með að hann þurfti að koma af velli.

Atvikið

Annað mark KR. Gummi Bö með skelfilega sendingu beint á Óskar, Óskar hleður í skotið beint á Hlyn sem missir boltann inn, rosalega dýrt og klaufalegt hjá Blikum.

Hvað þýða úrslitin?

KR eru nú með 26 stig á toppi deildarinnar, 4 stigum meira en Blikar sem eru í 2.sætinu. Mótið hálfnað og KR í vænlegri stöðu.

Vondur dagur

Hlynur Örn Hlöðversson. Hlynur Örn fékk sénsinn í dag þegar Gulli fór meiddur af velli. Hlynur gerði skelfileg mistök í 2.marki KR þegar hann missti boltann í gegnum lúkurnar á sér og í markið.

Dómarinn - 4

Ívar Orri hleypti leiknum upp í vitleysu oft á köflum, sleppti augljósum spjöldum og aukaspyrnum. Lélegur í dag fyrir bæði lið.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.