SKÝRSLAN: Grindavíkurvörnin stóð af sér Hafnfirskan sóknarstorm
Hvað réði úrslitum?
Þrátt fyrir að FH-ingar væru miklu meira með boltann og spiluðu oft á tíðum glymrandi bolta, hélt þéttur varnarmúr Grindavíkur. Hafnfirðingar geta prísað sig sæla að heimamenn nýttu ekki skyndisóknir sínar betur.
Bestu leikmenn
1. Vladan Djogatovic
Ætla að gefa honum þetta fyrir að hafa varið vítið, sem reyndist vera munurinn á jafntefli og tapi í dag.
2. Guðmundur Kristjánsson
Grinvíkingar náðu að skapa sér nokkrar hættulegar stöður í leiknum þar sem hann gerði vel að koma í veg fyrir dauðafæri.
Atvikið
Steve Lennon brennur af víti, þegar FH-ingar höfðu verið í sókn því til næst stanslaust í korter, eftir það náðu fengu Grindvíkingar innspýtingu og byrjuðu að trúa að þeir myndu halda þetta út.
Hvað þýða úrslitin?
Grindvíkingar geta sett afhroðið í bikarnum í baksýnisspegilinn og byggt á baráttunni. Þegar mótið er rétt tæplega hálfnað eru FH með 13 stig í sjöunda sæti, krísutal hlýtur að fara á fullt eftir þetta.
Vondur dagur
Nokkrir í framlínu FH sem koma sterklega til greina en Steve Lennon klúðraði víti og fær því þessa vafasömu nafnbót.
Dómarinn - 5
Held að stóru atvikin hafi verið rétt, en það var aragrúi minni dóma sem ósamkvæmni var á milli, sérstaklega þegar litið er til gulra spjalda.



