SKÝRSLAN: Velkomnir á Írska daga!
Hvað réði úrslitum?
Skagamenn kláruðu sín færi í frekar tíðindalitlum leik í veðurblíðunni á Skaganum.
Bestu leikmenn
1. Albert Hafsteinsson (ÍA)
Albert kom hrikalega vel inn í lið Skagamanna, vann návígin sín, vann marga seinni bolta og átti gullfallega sendingu á Viktor Jóns í öðru marki Skagamanna.
2. Tryggvi Hrafn Haraldsson (ÍA)
Tryggvi var alltaf hættulegur þegar hann fékk boltann, átti margar góðar sendingar úr föstum leikatriðum og skoraði auðvitað fyrsta markið.
Atvikið
Fyrsta markið setur auðvitað tóninn og kemur Skagamönnum yfir, mikilvægt fyrir Tryggva að skora líka.
Hvað þýða úrslitin?
Skagamenn stökkva upp í 3. sæti deildarinnar en Fylkismenn sitja eftir í 6. sætinu.
Vondur dagur
Áhorfendur, þeir fengu ekkert rosalega skemmtilegan leik hér í dag... Mikil stöðubarátta innan vallar og lítið um færi.
Dómarinn - 8
Mér fannst Pétur mjög flottur í dag, hélt sinni línu vel og ekkert vesen.



