Fotbolti.net
@DanelGeirMoritzDaníel Geir Moritz
Daníel Geir Moritz
Pepsi Max-deild karla
Hásteinsvöllur
Smá gola, heiðskýrt 15° og fínasti völlur
ÍBV
ÍBV
1 - 2
KR
KR
0 - 120' Óskar Örn Hauksson0 - 263' Arnþór Ingi KristinssonGuðmundur Magnússon 90'1 - 2
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson

SKÝRSLAN: Goslokahátíð dugði ekki til

Hvað réði úrslitum?

Ákveðinn gæðamunur réði úrslitum í dag. Óskar Örn skoraði frábært mark og kom það KR í kjörstöðu.

Bestu leikmenn

1. Arnþór Ingi

Var frábær í dag. Braut margar sóknir á bak aftur, skoraði og lagði upp mark.

2. Óskar Örn

Sýndi enn og aftur gæði sín og hafði gæðin sem þurfti til að klára dæmið í dag.

Atvikið

Gary Martin fékk blóðnasir eftir samstuð en dómari leiksins stöðvaði ekki leikinn, gaf Gary ekki aukaspyrnu og spjaldaði svo Gary fyrir að vera ósáttur.

Hvað þýða úrslitin?

KR heldur áfram að vinna og ÍBV að tapa. Liðin styrkja stöðu sína á sitt hvorum endanum í deildinni.

Vondur dagur

Óskar Zöega var að spila sinn fyrsta leik í sumar sem hægri bak í 4gra manna línu og átti erfitt með að finna sig. Var enginn sem átti eitthvað voða dapran dag.

Dómarinn - 5

Frekar döpur frammistaða þriðja liðsins í dag. Einar Ingi dæmdi stundum bara eitthvað og AD1 hamaðist við að vera bara línuvörður og aðstoðaði ekkert.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.