SKÝRSLAN: Hiti, dramatík og umdeildir dómar í frábærum leik Hauka á mótti Gróttu
Hvað réði úrslitum?
Eftir að Gunnlaugur jafnaði metin fyrir heimamenn kviknaði í þeim og þeir voru betri aðilinn í leiknum eftir það. Gróttumenn eru hinsvegar gífurlega sterkir og pressuðu alla bolta vel og spiluðu hratt á milli sín.
Það sem tryggði jafnteflið fyrir Hauka var að þeir gáfust aldrei upp, þó svo að það vantaði örlítið uppá sjálfstrúnna þá héldu þeir áfram og síðan var það auðvitað Oliver Helgi super-sub sem tryggði þeim punktinn.

Bestu leikmenn
1. Aron Freyr Róbertsson
Var gríðarlega öflugur fyrir heimamenn og skapaði stöðuga hættu. Kom einnig með frábæra sendingu á Oliver í jöfnunarmarkinu.
2. Axel Freyr Harðarson
Axel hætti ekki að hlaupa upp vinstri kantinn og áttu varnarmenn Hauka erfitt með að ná stjórn á honum. Það var alltaf spenna í manni þegar Axel komst á boltann.
Atvikið
Líklegast á 17. mínútu þegar Aron Freyr var felldur af Hákoni, markmanni Gróttu. Hefði verið hægt að dæma víti á þetta og ef Haukar hefðu skorað úr því þá værum við líklegast að horfa á önnur úrslit, svona sérstaklega miðað við hvernig þeir rifu sig í gang eftir fyrsta markið sitt.
Hvað þýða úrslitin?
Haukar sitja enn í 9. sæti nú með 11 stig. Þeir eru heppnir að Afturelding náði ekki sigri í dag en það hefði hent þeim upp fyrir Hauka.
Þetta var einnig fínn tími fyrir Gróttumenn til að gera jafntefli en bæði Fjölnir og Þór, liðin í fyrsta og þriðja sæti, gerðu jafntefli í dag. Grótta heldur því áfram í 2. sæti.
Þetta var einnig fínn tími fyrir Gróttumenn til að gera jafntefli en bæði Fjölnir og Þór, liðin í fyrsta og þriðja sæti, gerðu jafntefli í dag. Grótta heldur því áfram í 2. sæti.
Vondur dagur
Frekar leiðinleg úrslit fyrir Gróttu sem er í toppbaráttunni og hefði þurft að nýta sér það að Fjölnir gerði jafntefli. En bæði lið hefðu getað unnið hér í kvöld og því hugsa ég að báðir þjálfarar ganga sáttir burt með sitthvorn punktinn.
Dómarinn - 4,5
Þónokkrir umdeildir dómar og ég verð að vera sammála leikmönnum og þjálfurum með það að ég hef séð betri dómgæslu. Haukar áttu að fá víti, óþarfi að spjalda Búa, Daníel var rifinn niður þegar hann var kominn einn í gegn og var sjálfur dæmdur.
Það voru eiginlega of mörg umdeild atvik til þess að geta fylgst vel með hinum ákvörðunum hans, þær hreinlega gleymast inn í þessum látum en fyrir utan allt þetta stóð hann sig ágætlega.
Það voru eiginlega of mörg umdeild atvik til þess að geta fylgst vel með hinum ákvörðunum hans, þær hreinlega gleymast inn í þessum látum en fyrir utan allt þetta stóð hann sig ágætlega.