Fotbolti.net
Egill Sigfússon
Egill Sigfússon
Pepsi Max-deild karla
Kópavogsvöllur
Bongó!
Breiðablik
Breiðablik
4 - 0
KA
KA
Thomas Mikkelsen 21'1 - 0Alexander Helgi Sigurðarson 37'2 - 0Thomas Mikkelsen 80'3 - 0Brynjólfur Darri Willumsson 87'4 - 0
Dómari: Guðmundur Ársæll Guðmundsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Breiðablik með flugeldasýningu gegn afleitu KA liði

Hvað réði úrslitum?

Breiðablik voru bara miklu betri í þessum leik frá a-ö. Yfirspila KA liðið sem áttu fá svör og KA ekki að skapa sér mörg færi. Blikar með alvöru 4-0 sigur á lánlausum KA mönnum í kvöld.

Bestu leikmenn

1. Thomas Mikkelsen

Mikkelsen átti frábæran leik, var síógnandi í kvöld. Skoraði 2 mörk og fékk aukaspyrnuna sem Alexander Helgi skoraði úr, KA menn réðu ekkert við Mikkelsen í þessum ham.

2. Davíð Ingvarsson

Blikar áttu marga leikmenn sem komu til greina hér en ég gef Davíð þennan titil. Hann leggur upp fyrsta markið og fór oft á tíðum illa með Andra Fannar og Hauk hægra megin í KA vörninni auk þess sem hann var mjög öruggur varnarlega.

Atvikið

Leiðindaatvikið.
Í fyrsta marki Blika lenti Ívar á Aroni Degi sem þurfti að fara út á börum og er núna á sjúkrahúsi í myndatöku. Vonum að þetta sé ekki alvarlegt hjá þessum gríðarlega efnilega markmanni.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að Blikar minnka forskot KR aftur í 10 stig og halda öðru sætinu. Blikar voru á langri eyðimerkurgöngu án sigurs en komust heldur betur á bragðið í kvöld.
KA er áfram í fallsæti og markatalan þeirra versnaði verulega en hún gæti talið í lok móts.

Vondur dagur

Haukur Heiðar Hauksson.
KA liðið var afleitt í kvöld og hefðu margir getað fengið þennan vafasama heiður en Haukur var alls ekki góður í kvöld, missti marga bolta yfir sig og innfyrir og réði ekkert við fremstu menn Blika.

Dómarinn - 5

Hélt engri línu í leiknum, dæmdi oft bara eftir tilviljun og bæði lið voru ósátt með margar ákvarðanir hans í leiknum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.