Fotbolti.net
Magnús Þór Jónsson
Magnús Þór Jónsson
Pepsi Max-deild karla
Origo völlurinn
Fáránlega góðar eins og í allt sumar. 16 stiga hiti, létt gola og blautt gervigras. Toppaðstæður!
Valur
Valur
1 - 0
Fylkir
Fylkir
Patrick Pedersen 37'1 - 0
Dómari: Pétur Guðmundsson
Myndir: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

SKÝRSLAN: Iðnaðarsigur í sólinni á Origovellinum

Hvað réði úrslitum?

Andartaks einbeitingarleysi hjá varnarmönnum Fylkis og gæðin í Patrick Pedersen.

Andri Adolphsson fékk næði til að senda inní og Pedersen pláss til að skalla...og búmm. Sigurmark.

Bestu leikmenn

1. Andri Adolphsson

Lagði upp sigurmarkið og var stanslaus ógn þær 80 mínútur sem hann spilaði. Lykill að sóknarleiknum hjá Val.

2. Eiður Aron Sigurbjörnsson

Hafsentapar þeirra Valsmanna var gríðarlega öruggt í leiknum og þurfti að standa af sér áhlaup Fylkismanna. Eiður vinnur kapphlaupið milli þeirra á sjónarmun.

Atvikið

Rétt undir lokin féll Sigurður Egill í vítateig Fylkis og vildi víti en Pétur gaf engan möguleika á því, hefði verið gott að fá VAR til að staðfesta hvernig þetta leit út, lookaði víti úr blaðamannastúkunni.

Hvað þýða úrslitin?

Valsarar fara upp í fjórða sætið og af alvöru í Evrópubaráttuna.

Fylkismenn hins vegar eru fyrir neðan miðjuna og þurfa að gíra sig upp í næsta leik með það að leiðarljósi að dragast ekki inn í fallslaginn.

Vondur dagur

Ofboðslega vont að velja vondan dag hjá nokkrum manni.

Orri Sveinn lenti í vandræðum í fyrri hálfleik, gaf gult spjald fyrir bull og var í veseni með Andra. Hann náði vopnum sínum í seinni hálfleik en situr uppi með þennan Svarta - Pétur.

Dómarinn - 8,5

Afskaplega vel dæmdur leikur hjá Pétri og félögum, héldu góðri línu í gegnum leikinn og stjórnaði leiknum virkilega vel. Erfiðleikastig leiksins svona milli bara en ég ætla að segja hann hafa átt að henda í víti til að fá hærri einkunn. Flott frammistaða!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.