Fotbolti.net
Þorgeir Leó Gunnarsson
Þorgeir Leó Gunnarsson
Pepsi Max-deild karla
Samsung völlurinn
Stjarnan
Stjarnan
2 - 1
Víkingur R.
Víkingur R.
Jósef Kristinn Jósefsson 53'1 - 0Hilmar Árni Halldórsson (víti) 56'2 - 02 - 165' Óttar Magnús Karlsson
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: Þjóðhátíð í Garðabæ

Hvað réði úrslitum?

Stjarnan kom af krafti inn í síðari hálfleik og skoruðu tvö mörk eftir að hafa farið illa með góðar stöður í þeim fyrri. Þessi byrjun á seinni hálfleik réði úrslitum. Víkingar voru einfaldlega ekki nægilega góðir fyrstu 60 mínútur leiksins en voru sterkari í lokin. Það gaf þeim þó ekki neitt og vildi Arnar Gunnlaugs meina að sínir menn væru enn á Þjóðhátíð.

Bestu leikmenn

1. Alex Þór Hauksson

Virkilega góður leikur hjá Alex í dag. Hann var flottur í spilinu og einnig mjög duglegur að vinna boltann á miðjunni og keyra upp.

2. Daníel Laxdal

Þessi baráttuglaði Garðbæingur var sterkur í dag og vann mörg návígi. Leit illa út fyrir hann eftir höfuðhögg í fyrri hálfleik en hann hélt leik áfram og batt vörnina vel saman allan leikinn.

Atvikið

Seinna mark Stjörnunar reyndist ansi dýrmætt þegar flautað var til leiksloka. Eftir að hafa klúðrað tveimur vítaspyrnum í röð í undankeppni evrópudeildarinnar steig Hilmar á punktinn og skoraði af miklu öryggi. Enda spyrnumaður góður.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingar eru enn í bullandi fallbaráttu en Stjarnan nær í þrjá mikilvæga punkta eftir þrjú jafntefli í röð í deildinni. Kærkominn sigur fyrir baráttuna um evrópusæti sem er framundan.

Vondur dagur

Uppspil Víkings var ekki upp á marga fiska í dag. Þeir áttu afar erfitt með að tengja saman sendingar í fyrri hálfleik og gekk lítið upp framan af nema Ágúst og Guðmundur Andri keyrðu af stað sjálfir með boltann. Stjarnan vann boltann trekk í trekk í fyrri hálfleik eftir daprar sendingar.

Dómarinn - 6

Jóhann Ingi átti fínan dag. Það voru nokkur vafaatriði eins og alltaf en verst fannst mér línan sem hann setti í gulu spjöldunum. Það dregur hann niður að þessu sinni.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.