Fotbolti.net
@YearmanEagleÁrmann Örn Guðbjörnsson
Inkasso deildin - 1. deild karla
Framvöllur
Fram
Fram
2 - 0
Njarðvík
Njarðvík
Frederico Bello Saraiva 79'1 - 0Helgi Guðjónsson 90'2 - 0
Dómari: Guðgeir Einarsson

SKÝRSLAN: Einstaklingsmistök tryggðu Fram sigurinn

Hvað réði úrslitum?

Mistök í vörn Njarðvíkur gaf Fred mark á silfurfati.

Bestu leikmenn

1. Fred Saraiva.

Lang mest skapandi leikmaður Fram í leiknum. Nánast eini leikmaðurinn sem þorði að skjóta að markinu í staðinn fyrir að reyna troða honum í gegn.

2. Marcao

Valinn maður leiksins af stuðningsmönnum Fram. Klettur í vörninni sem steig varla feilspor í dag

Atvikið

Get ekki sagt annað en mistökin hjá Atla. Var búinn að vera góður í leiknum en vond mistök að reyna hreinsa boltann beint út úr teignum. Kixar boltann beint fyrir lappirnar á Fred

Hvað þýða úrslitin?

Fram lyfta sér upp í 5 sætið uppfyrir Víkinga. Víkingar geta þó endurheimt sætið á morgun þegar liðið fer til Keflavíkur. Njarðvík situr enn á botni deildarinnar

Vondur dagur

Atli Gunnarsson. Greyið maðurinn gerði sig sekann um mistök sem kostuðu liðið stig í leiknum. Fram voru aldrei líklegir til að skora í leiknum þó þeir væru sífellt að sækja. Dýr mistök í harðri fallbaráttu

Dómarinn - 6

Guðgeir var allt í lagi í leiknum, ekki meira en það
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.