Fotbolti.net
@danielmagg77Daníel Smári Magnússon
Daníel Smári Magnússon
Pepsi-Max deild kvenna
Þórsvöllur
8° hiti og smá norð-vestan gola - Nokkrir kuldalegir í stúkunni
Þór/KA
Þór/KA
3 - 1
Keflavík
Keflavík
0 - 136' Sveindís Jane Jónsdóttir Arna Sif Ásgrímsdóttir 50'1 - 1Andrea Mist Pálsdóttir 57'2 - 1Arna Sif Ásgrímsdóttir 65'3 - 1
Dómari: Sveinn Arnarsson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Þór/KA í 3. sætið eftir endurkomusigur

Hvað réði úrslitum?

Þór/KA liðið átti ekki góðan fyrri hálfleik, en þær skiptu um gír í seinni hálfleik og þá sást gæðamunurinn á liðunum. Þær fóru að hreyfa boltann hraðar og teygðu meira á gestunum. Arna Sif Ásgrímsdóttir var svo illviðráðanleg í teignum þegar að heimastúlkur fengu föst leikatriði. Keflavíkurstelpur naga sig í handabökin að hafa ekki skorað fleiri í fyrri hálfleik, því að liðið átti erfitt uppdráttar í þeim síðari.

Bestu leikmenn

1. Arna Sif Ásgrímsdóttir

Skoraði tvö og leiddi liðið til baka í þessum leik. Háði marga bardaga við Sveindísi Jane og barðist eins og ljón allan leikinn. Mjög góður leikur hjá fyrirliðanum.

2. Sveindís Jane Jónsdóttir

Átti flottan fyrri hálfleik og skoraði glæsilegt mark sem kom Keflvíkingum verðskuldað yfir í fyrri hálfleik. Hún var atkvæðaminni í seinni hálfleik, en var þó líflegust Keflvíkinga.

Atvikið

Jöfnunarmark Örnu Sifjar. Það lagði grunninn að því sem að kom á eftir í framhaldinu. Keflavík náði sér ekki á strik eftir að Þór/KA komst aftur inní leikinn og heimaliðið gekk á lagið.

Hvað þýða úrslitin?

Þór/KA smeygja sér upp fyrir Selfyssinga í 3. sætið, sem að eiga leik til góða og spila einn lítinn bikarúrslitaleik um helgina við KR. Keflvíkingar aftur á móti eru áfram í næstneðsta sæti deildarinnar og spila hvern úrslitaleikinn af fætur öðrum, það sem eftir lifir móts.

Vondur dagur

Það má í raun setja þetta á bæði lið. Þór/KA í fyrri hálfleik en Keflavík í þeim seinni. Þór/KA voru hugmyndasnauðar og hægar í sínum aðgerðum í fyrri hálfleik, á meðan að Keflavík brást illa við mótlæti í seinni hálfleiknum.

Dómarinn - 8

Sveinn átti flottan leik og ekkert útá hans frammistöðu að setja.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.