SKÝRSLAN: KR ER ÍSLANDSMEISTARI 2019!
Hvað réði úrslitum?
KR-ingar voru miklu betri, sýndu það á vellinum að þeir ætluðu sér að klára titilinn!
Bestu leikmenn
1. Finnur Tómas Pálmason (KR)
Finnur var gjörsamlega frábær í leiknum, pakkaði Patrick Pedersen nokkrum sinnum saman og svo jarðaði hann Emil Lyng eins og þeir væru búnir að skipta um skrokk. Ótrúlegur leikmaður sem hefur verið öryggið uppmálað í vörn KR í allt sumar, einungis 18 ára!
2. KR
Arnór Sveinn, Beitir, Kiddi Jóns... ég nenni ekki að skrifa þá alla. Frábær liðsframmistaða sem skóp þennan titil!
Atvikið
Markið, sofandaháttur í vörn Valsara þar sem Kennie sendir fyrir, Eiður Aron missir boltann yfir sig og Pálmi Rafn keyrir inn á nærsvæðið og neglir löppinni í hann.
Hvað þýða úrslitin?
KR er orðið Íslandsmeistari.
Valur er ólíklega að fara að ná evrópusæti, eða ég ætla bara að segja það á mína eigin ábyrgð, Valur mun aldrei ná evrópusæti úr þessu.
Vondur dagur
Svo ótrúlega margir úr Val sem koma til greina að það er óþarfi að nafngreina menn... Valur fékk varla færi fyrr en á 90. mínútu og ég hef aldrei séð lið með jafn góða leikmenn spila jafn illa.
Dómarinn - 6
Þorvaldur og félagar áttu nokkrar augljóslega rangar ákvarðanir en ekkert rosalega hættulegt þó, aðallega varðandi innköst og einhver horn/markspyrnur, hinsvegar mögulega dæmt í ranga átt þegar KR skorar, það er dýrt ef það var rangt!



