Fotbolti.net
@maggimarkMagnús Þór Jónsson
Magnús Þór Jónsson
Pepsi Max-deild karla
Kópavogsvöllur
Fallegt haustveður, 8 stiga hiti og eilítil gola heldur fólki við efnið. Rennslétt teppið!
Breiðablik
Breiðablik
1 - 1
Stjarnan
Stjarnan
0 - 138' Jósef Kristinn Jósefsson Höskuldur Gunnlaugsson 72'1 - 1
Dómari: Guðmundur Ársæll Guðmundsson

SKÝRSLAN: Evrópusæti en enginn titill í Kópavogi

Hvað réði úrslitum?

Færanýting og frábær markvarsla. Bæði lið fengu færi til að skora fleiri mörk en það tókst þeim ekki. Stöngin bjargaði Blikum en Haraldur bjargaði Stjörnumönnum í leik fullum af færum.

Bestu leikmenn

1. Haraldur Björnsson

Halli hefur fengið krítík í sumar og kjaftasögur um Ingvar Jóns á leið í Garðabæinn ágerast. Í kvöld sýndi hann heldur betur hvað í hann er spunnið. Yfirvegaður í öllum aðgerðum og margar flottar vörslur. Toppframmistaða.

2. Höskuldur Gunnlaugsson

Skoraði jöfnunarmark Blika og var þeirra hættulegasti maður sóknarlega og mjög öflugur í allri pressu.

Atvikið

Það hefði verið flott að hafa VAR í einu mómenti í seinni hálfleik þar sem Alex Þór féll í teig Blikanna á leið í gott skotfæri. Erlendur var þó nálægt.

Hvað þýða úrslitin?

Blikar þurftu ekki að skoða úrslitin af Hlíðarenda til að átta sig á því að þeir verða ekki meistarar í ár. Brekka Stjörnumenn í átt að Evrópusætinu verður brattari, þeir þurfa nú væntanlega að vinna upp 5 stiga mun á FH í 2 leikjum.

Vondur dagur

Stjarnan var í basli inni á miðsvæðinu þar sem Blikarnir unnu flesta bolta. Þess utan var mikið af sendingarfeilum frá köppunum þremur sem öllum var að lokum skipt útaf í leiknum.

Dómarinn - 8,5

Skrýtið að gefa þessa einkunn því skipt var um dómara í hálfleik. Guðmundur Ársæll fær klára 9,0 eftir flotta frammistöðu þar sem beinlínis góð dómgæsla var í hlutverki í marki Stjörnunnar. Erlendur Eiríks kom í hálfleik og var eilítið lengi í gang fannst mér en þegar hasarstigið hækkaði í lokin náði hann að landa leiknum vel. Fær 8,0 og meðaleinkunnin því 8,5.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.