SKÝRSLAN: Stál í Stál hjá ÍBV og Grindavík
Hvað réði úrslitum?
Jón Ingason, hann bjargaði eyjamönnum í þessum leik, hann kemur með algjöra neglu þegar á mest þurfti og tryggði það að eyjamenn fengu allavega 1 stig.
Bestu leikmenn
1. Jón Ingason
Algjörlega bjargaði eyjamönnum með markinu sínu og átti marga góða hluti í þessum leik.
2. Stefán Ingi Sigurðsson
Hann er vel vakandi og kemur með gott hlaup inn á fjærstöngina og stýrir boltanum í net eyjamanna og kemur Grindvíkingum yfir.
Atvikið
Atvikið verður að vera þegar Alexander Veigar fer með takkana á andlitið á Telmo, það hefði verið hægt að hafa annan lit á spjaldinu.
Hvað þýða úrslitin?
ÍBV er ennþá á toppi deildarinnar og eru taplausir en Grindavík halda sig í 6. sæti Lengjudeildarinnar
Vondur dagur
Dómarinn átti slæman dag, mjög lítið samræmi í dómgsælu og erfitt að skilja suma dómana.
Dómarinn - 4
Slæmur dagur hjá Agli.


