Fotbolti.net
Magnús Þór Jónsson
Magnús Þór Jónsson
Pepsi Max-deild karla
Vivaldivöllurinn
Það er beinlínis logn á Nesinu, rennislétt gervigras og vökvað af náttúrunnar hendi. Veisla framundan!
Grótta
Grótta
0 - 4
ÍA
ÍA
0 - 14' Viktor Jónsson0 - 213' Stefán Teitur Þórðarson 0 - 318' Brynjar Snær Pálsson0 - 434' Viktor Jónsson
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Myndir: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

SKÝRSLAN: Akranesafgreiðsla á 18 mínútum

Hvað réði úrslitum?

Bara annað liðið mætti til leiks!

Skagamenn skoruðu á þriðju mínútu og kláruðu leikinn á næstu 15 mínútum. 0-3 eftir 18 mínútur og eftir það var algerlega ljóst hver niðurstaðan yrði.

Bestu leikmenn

1. Stefán Teitur Þórðarson

Allt í öllu í leik Skagamanna. Gróttumenn gáfu honum vissulega svæðin til að vinna í en hann nýtti það heldur betur. Skoraði, lagði upp og dreifði spilinu.

2. Viktor Jónsson

Mark með skalla og hægri fæti, stöðugt ógnandi og mjög duglegur í pressu. Ef Viktor hrekkur í gírinn verður virkilega gaman að sjá hvernig sumarið þróast hjá honum og ÍA.

Atvikið

Fyrsta markið gaf tóninn.

Hallur fær endalausan tíma til að senda inní, Viktor fær að stökkva óáreittur upp á fjær og skalla að marki, skallinn laus en lekur inn. Uppskrift af leiknum klár eftir 160 sekúndur.

Hvað þýða úrslitin?

Skagamenn lyfta sér a.m.k. um sinn í 2.sæti deildarinnar og hafa nú safnað 7 stigum af 9 mögulegum í síðustu umferðum.

Gróttan situr rétt ofan við fallsæti og hefur nú fengið á sig 11 mörk í 3 heimaleikjum.

Vondur dagur

Varnarlína Gróttu og markmaður þurfa að leggja það á sig að horfa á fyrri hálfleikinn aftur. Þeir voru óöruggir, gáfu Skagamönnum endalausan tíma og svæði og slíkt bara einfaldlega gengur ekki í efstu deild.

Ef Gróttan á að láta draum rætast um að vera áfram á meðal þeirra bestu næsta sumar verða þessir að girða sig í brók!

Dómarinn - 8,0

Tveir dómarar sáu um þennan.

Vilhjálmur Alvar í fyrri, fór meiddur útaf í hálfleik og Gunnar Oddur Hafliðason tók við (mögulega fyrsti PepsiMax-leikur???).

Einfaldur leikur að dæma en allar ákvarðanir litu vel út og "dómaraframkoman" á réttu róli.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.