SKÝRSLAN: Iðnaðarsigur HK í Kópavogsslagnum
Hvað réði úrslitum?
Þetta eina mark HK sem þeir þurftu og frábær varnarleikur allar 90 mínúturnar, hentu sér fyrir gjörsamlega alla bolta og skölluðu allt frá, varnarleikurinn til fyrirmyndar!
Bestu leikmenn
1. Ívar Örn Jónsson
Varðist ótrúlega vel allar 90 mínúturnar og gerði kantmönnum Blika lífið leitt út á kanti þar sem Blikar sættu sig aðeins við fyrirgjafir og komust varla framhjá Ívari. Hann var einnig eini sem skapaði fyrir HK með góðum aukaspyrnum og fyrirgjöfum
2. Guðmundur Þór Júlíusson
Eins og Ívar þá varðist frábærlega allann leikinn og skallaði nánast hvern einasta bolta frá, sá til þess að Thomas Mikkelsen sást rosalega lítið í þessum leik, virkilega flottur
Atvikið
Auðvelt að segja bara markið sem HK skorar en Höskuldur Gunnlaugsson fékk dauðafæri undir lok leiks sem hann setti yfir markið, hefði verið gríðarlega sárt fyrir HK að fá á sig mark með síðustu spyrnu leiksins
Hvað þýða úrslitin?
HK fara í 9 sæti með 8 stig en Blikar eru dottnir í það 6. með aðeins 11 stig eftir þessar fyrstu átta umferðir Pepsi-Max
Vondur dagur
Anton Ari Einarsson
Ég neyðist til að setja þetta á Anton Ara þar sem hann gerist mistækur í markinu sem Blikar fá á sig þegar hann er of lengi á boltanum og Jón Arnar Barðdal kemst fyrir og það endaði svo með því að Birnir Snær skorar, einstaklingsmistök skildu liðið að í dag
Ég neyðist til að setja þetta á Anton Ara þar sem hann gerist mistækur í markinu sem Blikar fá á sig þegar hann er of lengi á boltanum og Jón Arnar Barðdal kemst fyrir og það endaði svo með því að Birnir Snær skorar, einstaklingsmistök skildu liðið að í dag
Dómarinn - 8,5
Virkilega flottur dagur hjá Agli Arnari í dag en hann virstist gera allt rétt, var með fínt flæði í leiknum, dæmdi réttilega ekki víti fyrir HK í seinni hálfleik og var að spjalda menn réttilega! Kudos á Egil



