Fotbolti.net
Sverrir Örn Einarsson
Pepsi Max-deild karla
Vivaldivöllurinn
Sól og blíða blautt teppi. Getur ekki klikkað
Grótta
Grótta
1 - 1
Víkingur R.
Víkingur R.
Karl Friðleifur Gunnarsson 2'1 - 01 - 154' Atli Hrafn Andrason
Dómari: Elías Ingi Árnason
Myndir: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

SKÝRSLAN: Rútunni lagt á Vivaldi

Hvað réði úrslitum?

Skipulag og agi heimamanna sem spiluðu klókan og taktískan varnarleik sem Víkingar áttu í gríðarlegum erfiðleikum með. Drápu allt tempó í spili gestanna og hleyptu þeim aldrei á neitt run. Virkilega klókt hjá Gústa og hans mönnum.

Bestu leikmenn

1. Arnar Þór Helgason

Hef ekki tölu á því hve oft hann braut sóknir Víkinga á bak aftur. Traustur til baka en var líklega stálheppinn að fá ekki dæmt á sig víti í stöðunni 1-1 þegar hann virtist handleika boltann innan teigs.

2. Karl Friðleifur Gunnarsson

Gæti sett báða bakverði Gróttu hér en Karl fær sætið fyrir skorað mark. Hlupu úr sér lungun og unnu gríðarlega mikið í því að loka svæðum sem Víkingar reyndu að sækja í.

Atvikið

Á 74.mínútu áttu Víkingar líklega að fá víti sem þeir reyndar kölluðu eftir nokkrum sinnum áður í leiknum. Þetta virtist þó vera ansi augljóst og Arnar stálheppinn að fá ekki dæmt á sig víti fyrir að handleika boltann og annað gult spjald og þar með rautt fyrir.

Hvað þýða úrslitin?

Jafnteflið fleytir Víkingum upp í 3.sæti deildarinnar eftir tap Blika gegn HK. Grótta situr enn í því 11.

Vondur dagur

Ágúst Eðvald Hlynsson hefur átt betri daga. Var alveg að reyna en tekur of oft alltof margar snertingar á boltann og dregur þar með úr flæði spilsins. Er samt alveg drullugóður í fótbolta og þegar þetta heppnast hjá honum lítur þetta vel út.

Dómarinn - 6

Elías dæmdi leikinn heilt yfir ekkert illa en ef svo reynist að Víkingar hafi sannarlega átt að fá vítaspyrnu og hvað þá spyrnur telst það varla gott. Gerði þó vel í leikstjórn og leiknum almennt en eftir sitja þessi stóru atvik.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.