Fyrir leik
Hér verður bein textalýsing frá leik Þróttar og Selfyssinga í 8-liða úrslitum Borgunarbikarsins.
Fyrir leik
Þróttur sigraði Leikni R. í 32-liða úrslitunum og liðið sló síðan Val út í 16-liða úrslitunum þar sem Karl Brynjar Björnsson skoraði sigurmarkið í framlengingu.
Selfoss lagði Njarðvík úr 2. deild í 32-liða úrslitunum og sigraði síðan KB úr 3. deild 4-0 í 16-liða úrslitunum á dögunum.
Fyrir leik
Miðverðir Selfyssinga, Stefán Ragnar Guðlaugsson og Ove Endre Brenne, eru báðir fjarri góðu gamni í gær. Stefán Ragnar meiddist í síðasta leik gegn Stjörnunni en Endre Brenne fékk rauða spjaldið og er þvi í banni í dag.
Fyrir leik
Auðun Helgason, aðstoðarþjálfari Selfyssinga, stjórnar upphituninni. ,,Koma svo, setja sig í stand allir sem einn,\" segir Auðun við sína menn en hann hefur séð margt í boltanum í gegnum tíðina, þrautreyndur.
Fyrir leik
Hinn ungi Jón Daði Böðvarsson fær fyrirliðabandið hjá Selfyssingum í dag í fjarveru Stefáns Ragnars.
Fyrir leik
Stuðningsmannalag Þróttar ómar í hátalarakerfinu og hefur gert það núna í nokkrar mínútur. Ekki það hressasta í bransanum en textinn ágætur: ,,Ég er Þróttur, ást og fegurð, hærra rís.\"
Fyrir leik
Áskell Þór Gíslason aðstoðardómari skoðar netið í markinu og segir síðan ,,Gangi þér vel\" við Ismet Duracak markvörð Selfyssinga. Ismet skilur ekkert hvað Áskell er að segja en tekur kveðjunni vel.
1. mín
Leikurinn er hafinn. Miðjumaðurinn öflugi Babacar Sarr leysir miðvarðarvandræði Selfyssinga og leikur við hlið Agnars Braga í hjarta varnarinnar í dag.
2. mín
Skjálftamenn, stuðningsmannasveit Selfyssinga, er mætt á völlinn og láta vel í sér heyra þegar þeir ganga inn í stúkuna.
8. mín
Það er ekki hægt að sjá á upphafsmínútunum að heil deild skilji liðin að. Þróttarar byrja betur.
19. mín
Þróttarar áfram líklegri inni á vellinum en færin láta bíða eftir sér. Skjálftamenn hafa sungið allan leikinn en voru að taka sína fyrstu pásu til að anda, eftir 19 mínútna leik.
21. mín
Þróttarar hafa fengið nokkrar hornspyrnur í byrjun leiks og Ismet Duracak markvörður Selfyssinga þarf að hafa sig allan við til að slá boltann í burtu hérna.
23. mín
Það bætir í rigninguna hér á Valbjarnarvelli. Viðar Örn Kjartansson fær fyrsta færi Selfyssinga en skot hans fer framhjá.
27. mín
Oddur Björnsson fær færi fyrir Þrótt eftir langt innkast en Ismet ver skot hans.
40. mín
Selfyssingar að sækja í sig veðrið. Við auglýsum samt ennþá eftir færum og mörkum.
42. mín
Gult spjald
Sigurður Eyberg Guðlaugsson
Þóroddur Hjaltalín Jr. veifar gula spjaldinu í fyrsta skipti í kvöld.44. mín
Gult spjald
Joe Tillen
Joe Tillen fær gula spjaldið fyrir munnsöfnuð. Þóroddur kann ekki vel við ensk blótsyrði.45. mín
Búið er að flauta til leikhlés og staðan er markalaus. Þessi fyrri hálfleikur verður ekki fjölfaldaður og gefinn út á DVD, lítið um færi og afar rólegur leikur. Þróttarar byrjuðu betur en Selfyssingar hafa unnið sig inn í leikinn síðari hluta hálfleiksins. Vonum að mörkin komi í síðari hálfleiknum.
46. mín
Síðari hálfleikurinn er hafinn!
50. mín
Jón Daði Böðvarsson á fínan sprett upp völlinn en skot hans hittir ekki markið.
50. mín
MAAAARK!
Oddur Björnsson
Þróttarar komast yfir! Heimamenn ná að koma hratt á vörn Selfyssinga og Oddur Björnsson fær boltann út í vinstra megin eftir sendingiu frá Halldóri Hilmissyni. Hann leikur inn í teiginn og fer framhjá Sigurði Eyberg og Agnari Braga áður en hann smellir boltanum í nærstöngina og inn. Mjög vel gert hjá Oddi!55. mín
Moustapha Cissé fær ágætis færi en skot hans fer yfir markið. Cissé fékk boltann inn fyrir og var í þröngri stöðu þegar hann tók boltann á lofti en skotið hitti ekki markið.
56. mín
Selfyssingar fara illa með dauðafæri til að jafna! Ólafur Karl Finsen á fyrirgjöf á fjærstöng þar sem Joe Tillen fær frían skalla en boltinn fer beint á Ögmund Ólafsson í markinu. Boltinn fer síðan á Jón Daða Böðvarsson sem á skot yfir markið.
57. mín
InnAndri Gíslason
ÚtGuðfinnur Þórir Ómarsson
57. mín
InnTómas Leifsson
ÚtSigurður Eyberg Guðlaugsson
Logi Ólafsson, þjálfari Selfyssinga, með sókndjarfa skiptingu. Tómas er vanur því að spila á kantinum en hann tekur stöðu Sigurðar í hægri bakverðinum.
60. mín
Selfyssingar eru að sækja í sig veðrið og þeir eru líklegri. ,,Það vantar smá núna allir, upp með þetta,\" öskrar Erlingur Jack Guðmundsson miðvörður Þróttara og kvikmyndagerðarmaður.
63. mín
Selfyssingar eiga þrjár hornspyrnur í röð og skömmu síðar á Mousthapa Cissé þrumuskot í utanverða stöngina. Jöfnunarmarkið virðist liggja í loftinu....
70. mín
Selfyssingar halda áfram að ógna. Jón Daði Böðvarsson leikur listir sínar og á þrumuskot fyrir utan teig sem Ögmundur Ólafsson slær út í teiginn. Viðar Örn Kjartansson nær frákastinu og fellur við eftir baráttu við Hlyn Hauksson. Selfyssingar vilja vítaspyrnu en Þóroddur dæmir ekkert.
71. mín
Gult spjald
Andrew James Pew
Bragi fær spjald fyrir að tækla Odd Björnsson af krafti aftan frá.72. mín
MAAAARK!
Oddur Björnsson
Þróttarar skora annað mark þvert gegn gangi leiksins! Andri Gíslason hefur betur gegn Babacar Sarr og kemst í færi inn á teignum. Hann rennir boltanum yfir á fjærstöngina þar sem Oddur skorar auðveldlega í autt markið, hans annað mark í leiknum.72. mín
Gult spjald
Ingvi Rafn Óskarsson
Babacar telur að Andri hafi brotið á sér í aðdragada marksins og hleypur brjálaður út að hliðarlínunni til að funda með Sigurði Óla Þorleifssyni aðstoðdómara. Babacar græðir ekkert á því annað en gult spjald hjá Þóroddi dómara. Babacar hafði þó líklega eitthvað til síns máls en hann féll við eftir baráttuna við Andra.76. mín
InnIngólfur Þórarinsson
ÚtJoseph David Yoffe
Miðjumaður inn og framherji út. Jón Daði Böðvarsson fer af miðjunni og upp á topp.
80. mín
MAAAARK!
Andri Gíslason
Þróttarar eru að henda sér í undanúrslitin! Vilhjálmur Pálmason á fast skot sem Ismet nær ekki að halda og Andri Gíslason skorar auðveldlega í autt markið.83. mín
Gult spjald
Arnþór Ari Atlason
84. mín
InnDavíð Stefánsson
ÚtVilhjálmur Pálmason
86. mín
InnAron Lloyd Green
ÚtArnþór Ari Atlason
88. mín
Moustapha Cissé á hörkuskalla en Ögmundur ver og Þróttarar ná síðan að hreinsa rétt áður en Jón Daði nær til boltans.
Leik lokið!
Þróttarar eru komnir í undanúrslitin, óvænt úrslit hér í Laugardalnum. Nánar verður fjallað um leikinn hér á Fótbolta.net síðar í kvöld.



