Fotbolti.net
@elvargeirElvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Víkingur R.
Víkingur R.
Borgunarbikarinn
Víkingsvöllur
0 - 3
Grindavík
Grindavík
0 - 133' Pape Mamadou Faye0 - 247' Alexander Magnússon0 - 377' Ray Anthony Jónsson
Dómari: Kristinn Jakobsson
Myndir: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
Fyrir leik
Komið þið sæl! Framundan er leikur Víkings og Grindavíkur í 8-liða úrslitum Borgunarbikarsins. Það verður leikið til þrautar á Víkingsvelli og möguleiki á framlengingu og vítaspyrnukeppni. Víkingar leika í 1. deildinni þar sem gengi þeirra hefur ekki verið gott. Liðið er í níunda sæti. Grindvíkingar eru í neðsta sæti Pepsi-deildarinnar en unnu sinn fyrsta deildarleik sumar þegar þeir lögðu Val í síðustu umferð.
Fyrir leik
Tónlistin er farin að óma í Víkinni og Elvis-eftirherman Jósef er byrjaður að grilla pylsur. Byrjunarliðin eru komin inn. Paul McShane er kominn aftur í leikmannahópinn hjá Grindavík og var að fá sér íþróttablys fyrir utan þegar blaðamaður Morgunblaðsins rann í hlað.
Fyrir leik
Tómas Meyer spáir í spilin: Það er erfitt að spá fyrir um úrslit leiksins en ég hallast að sigri Grindavíkur.
Fyrir leik
Það rignir hér í Víkinni og blæs aðeins. Stúkan ver fólk fyrir því í kvöld. Hitastig 12 gráður.
Fyrir leik
Kristinn Jakobsson dæmir leikinn og er í markvissri upphitun ásamt aðstoðarmönnum sínum þessa stundina.
Fyrir leik
Þegar þessi lið mættust í Pepsi-deildinni í fyrra léku þau 180 markalausar mínútur. Vonandi fáum við markaleik í kvöld en ég ætla ekki að veðja á það.
1. mín
Leikurinn er hafinn Grindvíkingar byrjuðu með boltann. Jón Guðbrandsson er miðvörður hjá Víkingi með Agli Atlasyni í kvöld.
3. mín
Hætta upp við mark Víkinga eftir hornspyrnu en heimamenn náðu að bægja hættunni frá.
4. mín
Scott Ramsey með aukaspyrnu á hættulegum stað. Skot hans rétt framhjá.
10. mín
Hjalti Már Hauksson með hörkuskot sem fór í stöngina. Þokkalegt líf í þessu hér í byrjun þó fótboltinn sé ekki í háum gæðaflokki. Grindvíkingar verið meira með boltann.
Grindavík
12. mín
Gult spjald

Alexander Magnússon

13. mín
Víkingar vildu fá vítaspyrnu þegar Helgi Sigurðsson féll í teignum. Ekkert dæmt og það við mikla gremju Helga.
Víkingur R.
20. mín
Gult spjald

Ágúst Freyr Hallsson

Var að kljást við Alexander Magnússon og Grindvíkingurinn hafði betur.
22. mín
Hjörtur Hjartarson fær sér kaffi í stúkunni. Hann er meiddur og því ekki með í kvöld. Sama á við um Reyni Leósson.
23. mín
Víkingar virðast vera að ná undirtökunum. Hafa verið ógnandi í föstum leikatriðum síðustu mínútur.
28. mín
Pape Mamadou Faye með skot í stöngina eftir að Egill Atlason hrasaði í teignum. Víkingar í stúkunni vildu fá dæmda aukaspyrnu í aðdragandanum.
Grindavík
33. mín
MAAAARK!

Pape Mamadou Faye

Grindvíkingar hafa náð forystunni. Pape skoraði í þriðja leiknum í röð. Hætta skapaðist eftir hornspyrnu og Pape fékk sendingu í teiginn, varnarmenn Víkings gleymdu sér og mark. Snyrtilega gert.
36. mín
Þetta mark kom gegn gangi leiksins en Víkingar hafa verið öflugri.
42. mín
Magnús Björgvinsson með fallegt skot sem fór í stöngina! Eftir það barst boltinn út á Scott Ramsey sem var í dauðafæri en hitti ekki markið.
Grindavík
45. mín
Gult spjald

Scott Ramsay

45. mín
Hálfleikur - Flautað hefur verið til hálfleiks. Staðan 1-0 fyrir gestina úr Grindavík.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn.
Grindavík
47. mín
MAAAARK!

Alexander Magnússon

Grindavíkurliðið er komið í 2-0! Alexander hirti frákastið og skoraði eftir magnaðan undirbúning Pape Mamadou Faye. Skot Pape var varið en Alexander rétti maðurinn á réttum stað.
51. mín
Grindvíkingar mun öflugri núna. Spurning hvort trúin sé farin úr Víkingum?
Grindavík
52. mín
InnHafþór Ægir Vilhjálmsson
ÚtPape Mamadou Faye
Pape farinn meiddur af velli.
Víkingur R.
52. mín
InnViktor Jónsson
ÚtHjalti Már Hauksson
Hjalti alls ekki átt góðan dag.
62. mín
Það er voða rólegt yfir leiknum núna. Liggur ekki nein endurkoma hjá Víkingi í loftinu.
Grindavík
68. mín
InnÓli Baldur Bjarnason
ÚtMagnús Björgvinsson
Víkingur R.
68. mín
InnPatrik Snær Atlason
ÚtGunnar Helgi Steindórsson
Víkingur R.
75. mín
InnSigurður Egill Lárusson
ÚtHelgi Sigurðsson
Grindavík
77. mín
MAAAARK!

Ray Anthony Jónsson

Glæsilegt mark! Ray Anthony klárar leikinn algjörlega. Léleg hreinsun hjá Víkingum og Ray átti hnitmiðað skot í hornið.
Víkingur R.
92. mín
Gult spjald

Aron Elís Þrándarson (f)

93. mín
LEIK LOKIÐ Grindavík er komið í undanúrslit bikarkeppninnar eftir sannfærandi sigur á Víkingum. Uppleggið hjá Guðjóni Þórðarsyni gekk fullkomlega upp í kvöld.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.