Fotbolti.net
@gunnarkarl94Gunnar Karl Haraldsson
Gunnar Karl Haraldsson
ÍBV
ÍBV
Borgunarbikarinn
Hásteinsvöllur
Hlýtt í Eyjum í dag en dálítill vindur.
1 - 2
KR
KR
Eyþór Helgi Birgisson 17'1 - 01 - 186' Óskar Örn Hauksson1 - 287' Óskar Örn Hauksson
Dómari: Magnús Þórisson
Fyrir leik
Góðan daginn lesendur Fótbolta.net. Hér verður bein útsending frá leik ÍBV og KR í 8-liða úrslitum í Borgunarbikarnum.
Fyrir leik
Hjá Eyjamönnum eru Brynjar Gauti og George Baldock að taka út leikbann. Svo meiddust Tonny Mawejje og Christian Olsen í leik St.Patrick\'s og ÍBV í Evrópudeildinni á dögunum. Það sem að kemur á óvart í liði KR er að Guðmundur Reynir er á bekknum. Svo eru Kjartan Henry og Wheston meiddir í liði KR.
Fyrir leik
Um helgina fór fram goslokahátíð í Vestmannaeyjum svo að það búast við að það verði góð mæting á áhorfendapallana í dag.
Fyrir leik
Leikurinn verður einnig sýndur á Stöð 2 Sport.
Fyrir leik
Fólk er byrjað að mæta í nýju stúkuna á Hásteinsvelli sem er verið að vígja í dag.
Fyrir leik
Leikmenn liðanna eru kominn inná völlinn.
Fyrir leik
Leikurinn er hafinn og KR byrja með boltann.
Fyrir leik
Leikurinn er hafinn.
1. mín
Viktor Bjarki komst að vítateignum og átti laflaust skot framhjá. KR var aftur með skot sem Óskar Örn átti en beint á Abel í markinu.
8. mín
Eyjamenn virðast vera í vandræðum. KR er yfir í allri baráttu.
9. mín
Það kom sending inná teiginn sem Eyþór Helgi fékk og hann ætlaði að leggja boltann framhjá Hannesi í markinu en Hannes gerði vel og lokaði vel á markið.
11. mín
ÍBV vildu fá dæmda hendi á Bjarna Guðjónsson en ekkert dæmt.
13. mín
Eyþór Helgi með gott skot en boltinn framhjá.
15. mín
Eyjamenn að fá hornspyrnu eftir að Gunnar Már sendi inn í teginn en KR hreinsaði í horn.
ÍBV
17. mín
MAAAARK!

Eyþór Helgi Birgisson

Eyþór Helgi með skot utan teigs, smyr hann upp í ,,SAMÚEL\'\'. Frábært skot og mark. Eyjamenn komnir yfir!
22. mín
Abel Dhaira markmaður ÍBV er eitthvað að kveikna sér hérna á vellinum.
KR
23. mín
InnGuðmundur Reynir Gunnarsson
ÚtGunnar Þór Gunnarsson
Guðmundur Reynir að koma inná fyrir Gunnar Þór sem er eitthvað meiddur eftir að hafa fengið högg á öxlina áðan.
25. mín
Gunnar Már með skot sem fer upp í hendina á Viktori Bjarka. Aukaspyrna á hættulegum stað sem TG#9 stillir boltanum upp!. Boltinn fer vel yfir markið hjá Tryggva.
ÍBV
27. mín
Gult spjald

Þórarinn Ingi Valdimarsson

Emil Atlason hrinti á bakið á Þórarnir Inga en ekkert dæmt sem fauk greinilega í hann og hann tæklaði Emil þegar hann var búinn að vinna boltann af honum.
32. mín
Guðmundur Reynir með fyrirgjöf og Abel kom út og ætlaði að hirða boltann en boltinn fór í gegnum teiginn og enginn hætta.
33. mín
Víðir með sendingu inn á Tryggva og Hannes fór í skógarhlaup að Tryggva sem náði skallanum en boltinn framhjá markinu.
34. mín
Ian Jeffs vann boltann og hljóp með knöttinn inn í teiginn þar mætti Grétar Sigfinnur og tæklaði boltann í burtu. Strax í næstu sókn hjá KR átti Óskar Örn góða sendingu á Emil Atlason sem skallaði hátt yfir.
35. mín
Aðeins mínútu seinna átti Óskar Örn aftur sendingu sem bæði Þorsteinn Már og Emil misstu báðir af í teignum.
38. mín
Óskar Örn með lélegt skot beint á Abel
45. mín
Eyþór Helgi var við það að sleppa hérna í gegn. En Grétar Sigfinnur gerði vel og vann boltann og bjargaði því að Eyþór væri kominn í dauðafæri.
45. mín
2 mínútum bætt við fyrri hálfleikinn.
45. mín
Kominn hálfleikur hérna á Hásteinsvelli. Eyjamenn leiða 1-0 eftir að Eyþór Helgi gerði frábært mark.
45. mín
Leikurinn búinn að vera frekar kaflaskiptur hérna. KR byrjaði leikinn betur og voru að skapa sér hálffæri. Svo tóku Eyjamenn völdinn eftir 20 mínútur eða svo og náðu góðu marki. Eftir markið dó leikurinn hægt og rólega og varð meira bara barátta um boltann á miðjunni. Vonandi fáum við skemmtilegri seinni hálfleik sem fer að hefjast hérna eftir nokkrar mínútur.
46. mín
Síðari hálfleikur er byrjaður!
48. mín
Viktor Bjarki með létta sendingu fyrir markið en Abel stekkur hæð sína og grípur tuðruna, engin hætta
49. mín
Þorsteinn Már skallar boltann að marki ÍBV, en skallinn laus og ekkert að frétta. KR-ingar búnir að vera hættulegri þessar fyrstu mínútur síðari hálfleiks og Eyjamenn þar með búnir að liggja aftarlega!
50. mín
Í hálfleik buðu áhorfendur stuðningsmann eyjamanna Þorvarð Þorvarldsson velkominn aftur á Hásteinsvöll eftir erfið veikindi.
55. mín
Guðmundur Þórarinsson missti boltann fyrir utan vítateig, þar sem Viktor Bjarki senti boltann á Óskar Örn sem átti skot hátt yfir markið! Þetta er að verða að hörkuleik!
56. mín
KR-ingar fá víti, Þórarinn Ingi fer í bakið á Þorsteini Má! Óskar Örn fór á punktinn og Abel Dhaira varði frá honum, laus spyrna og Abel valdi rétt horn!
61. mín
Leikurinn búinn að vera virkilega spennandi, bæði lið búin að eiga nóg af færum og mikil barátta á miðju vallarins þar sem Tryggvi Guðmunds og Bjarni Guðjóns takast á!
66. mín
Þorsteinn Már sparkar aðeins í löppina á Matt Garner eftir að Garner negldi boltanum fram völlinn, stuðningsmenn og leikmenn ÍBV og vildu fá aukaspyrnu en ekkert dæmt og boltinn rúllar.
72. mín
Eyjamenn í stórsókn, Eyþór Helgi gerir vel og reynir síðan að leggja boltann á Ian Jeffs sem er á vítapunktinum.. en Grétar Sigfinnur gerir betur og sparkar boltanum í horn. Hornspyrnan var slök og KR ingar fóru upp með boltann!
74. mín
Eyþór Helgi Birgisson með lúmskt skot fyrir utan teig og Hannes Þór neyðist til að bjarga í horn!
ÍBV
75. mín
InnRagnar Leósson
ÚtIan Jeffs
ÍBV
77. mín
Gult spjald

Víðir Þorvarðarson

77. mín
ÍBV með rosalega sókn, Eyþór Helgi komst einn á móti Hannesi þar sem Eyþór reyndi að lyfta boltanum yfir hann en Hannes varði og þaðan fór boltinn á Ragnar Leósson sem skaut lausu skoti á Hannes, Hannes varði boltann í 2 skiptið í fæturnar á Ragnari þar sem hann toppaði fyrra skotið og skaut enn lausara skoti í fangið á honum!
ÍBV
79. mín
Gult spjald

Abel Dhaira

Fékk gult spjald fyrir að leika boltann út í innkast og tók hann síðan upp inn á völlinn. Skemmtilegt!
ÍBV
84. mín
InnAaron Spear
ÚtEyþór Helgi Birgisson
84. mín
KR
84. mín
InnBjörn Jónsson
ÚtEmil Atlason
KR
86. mín
MAAAARK!

Óskar Örn Hauksson

Björn Jónsson sem var nýkominn inn á völlinn á góða sendingu í fæturnar á Óskari Erni sem prjónar sig í gegnum vörnina og leggur hann í hornið, þetta lýtur ekki vel út fyrir eyjamenn
KR
87. mín
MAAAARK!

Óskar Örn Hauksson

GOAL-AZO! Óskar Örn skorar sitt annað mark í þessum leik og þetta er að gerast á sömu mínútu, á skot á teigslínu og vel fast í sama horn og áðan!
ÍBV
87. mín
InnAndri Ólafsson
ÚtVíðir Þorvarðarson
90. mín
Venjulegur leiktími er liðinn hér í eyjum, 3 mínútur í viðbót!
KR
91. mín
InnEgill Jónsson
ÚtBjarni Guðjónsson
Leik lokið!
Leikurinn er búinn hér í eyjum, rosalegur endir á flottum leik!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.