SKÝRSLAN: KR í undanúrslit eftir enn einn sigurinn á Breiðablik
Hvað réði úrslitum?
Varnarleikur Blika og færanýting. Blikar klikkuðu nokkrum góðum færum í stöðunni 0-0 og fá svo á sig tvö mörk í lok fyrri hálfleiks og eftir það stýrði KR leiknum að mestu leyti.
Bestu leikmenn
1. Ægir Jarl Jónasson
Kom inn í liðið fyrir Pablo sem var í leikbanni og sá nýtti sénsinn, skoraði tvö frábær mörk og var síógnandi, gat náð þrennuni þegar hann skallaði boltann í innanverða stöninga.
2. Atli Sigurjónsson
Besti leikmaður KR í sumar átti enn einn frábæra leikinn, skoraði frábært mark og var að koma með hættulega bolta trekk í trekk.
Atvikið
Annað mark KR.
KR skoraði á 42. mínútu og svo þegar fyrri hálfleikurinn var að klárast þá bætti Atli Sigurjónsson við öðru marki og allt í einu orðið 2-0 og brekkan brött fyrir Blika.
KR skoraði á 42. mínútu og svo þegar fyrri hálfleikurinn var að klárast þá bætti Atli Sigurjónsson við öðru marki og allt í einu orðið 2-0 og brekkan brött fyrir Blika.
Hvað þýða úrslitin?
KR fer í undanúrslit Mjólkurbikarsins á meðan Blikar detta út.
Vondur dagur
Oliver Sigurjónsson.
Oliver var mjög ólíkur sjálfum sér, var alltaf einu skrefi á eftir mönnum og Ægir Jarl fór oft illa með hann. Kiddi sendi hann svo á rassgatið í lokin sem lísti leik hans í kvöld.
Oliver var mjög ólíkur sjálfum sér, var alltaf einu skrefi á eftir mönnum og Ægir Jarl fór oft illa með hann. Kiddi sendi hann svo á rassgatið í lokin sem lísti leik hans í kvöld.
Dómarinn - 7
Þeir létu leikinn rúlla ágætlega, einhver atvik sem menn voru að kvarta yfir en heilt yfir fínn leikur.



