Fotbolti.net
Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Pepsi Max-deild karla
Würth völlurinn
Sól og blíða
Fylkir
Fylkir
0 - 2
FH
FH
0 - 125' Steven Lennon (víti)Unnar Steinn Ingvarsson 36'0 - 248' Matthías Vilhjálmsson
Dómari: Erlendur Eiríksson
Áhorfendur: 200
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: FH sótti öll stigin á Wurth vellinum manni fleiri

Hvað réði úrslitum?

Gæðin i FH voru einfaldlega meiri. Fylkir byrjaði leikinn af krafti en lentu undir eftir mark úr vítaspyrnu, misstu svo mann af velli sem leyfði FH að taka yfir leikinn og stýra honum þægilega í höfn.

Bestu leikmenn

1. Þórir Jóhann Helgason

Var frábær á miðjunni hjá FH. Átti stoðsendingu í markinu hans Matta Villa og átti einnig sendinguna sem sprengdi upp vörn Fylkis þegar Jónatan Ingi sótti vítið.

2. Steven Lennon

Var að valda varnarlínu Fylkis vandræðum með hápressunni. Skoraði gott mark úr víti og fær því plús i kladdann.

Atvikið

Rauða spjaldið hjá Unnari Stein.
Fær 2 gul á 90 sek Kafla sem þótti umdeilt.

Hvað þýða úrslitin?

FH kemst á blað á meðan Fylkir sitja eftir með sárt ennið.

Vondur dagur

Unnar Steinn Ingvarsson vill sennilega gleyma frumraun sinni í Pepsi Max deildinni. Átti virkilega slæman 90 sekúndna kafla þar sem hann fékk 2 gul og þar með rautt.

Dómarinn - 5

Fylkismenn vilja væntanlega gefa málaranum falleinkun en ég ætla leyfa honum að njóta vafans. 2 stórir dómar sem Fylkismenn eru alls ekki sáttir með, vítið og rauða spjaldið.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.