SKÝRSLAN: Jafntefliskóngar síðustu leiktíðar byrja á jafntefli
Hvað réði úrslitum?
Bæði lið fóru varfærnislega í þennan leik og varnirnar voru þéttar. Markalaust jafntefli sanngjarnt.
Bestu leikmenn
1. Steinþór Már Auðunsson
Hélt hreinu og varði eina dauðafæri leiksins með glæsibrag. Frábær fyrsti leikur í efstu deild hjá Steinþóri.
2. Martin Rauschenberg
Martin átti flottan leik, HK gaf fá færi á sér í leiknum og Martin átti þrælgóðan leik.
Atvikið
Dauðafærið sem Stefán fékk í seinni hálfleiknum, Dusan átti misheppnaða sendingu tilbaka sem Stefán komst inn í en Steinþór varði glæsilega frá honum einn á einn.
Hvað þýða úrslitin?
Þau þýða það að bæði lið byrja á stigi og KA er búið að gera 13 jafntefli í síðustu 19 deildarleikjum sínum.
Vondur dagur
Birnir Snær Ingason.
Sóknarleikurinn var ekki merkilegur í þessum leik og voru fleiri sem komu til greina. Birnir hins vegar sást varla allan leikinn og verður að gera miklu meira í næstu leikjum.
Sóknarleikurinn var ekki merkilegur í þessum leik og voru fleiri sem komu til greina. Birnir hins vegar sást varla allan leikinn og verður að gera miklu meira í næstu leikjum.
Dómarinn - 8
Löggan dæmdi þennan leik mjög vel.



