0. mín
Góðan daginn kæru lesendur og velkomnir í beina textalýsingu frá leik ÍA og Breiðabliks í tólftu umferð Íslandsmótsins.
0. mín
Þetta er mikilvægur leikur fyrir bæði lið enda mætast hér liðin í fimmta og níunda sæti deildarinnar. Liðin hafa mæst í 58 skipti í opinberum leikjum á vegum KSÍ og hefur ÍA unnið 31 leik, Breiðablik 13 og 9 sinnum hafa leikir endað með jafntefli. Markatalan er einnig ÍA í hag eða 126 mörk gegn 71 mörkum Breiðabliks.
0. mín
Liðin hafa byrjað Íslandsmótið ágætlega en deildin er afar jöfn og sem dæmi eru aðeins tvö stig á milli fjórða sætis og þess níunda. ÍA er í fimmta sæti deildarinnar með 17 stig eftir fimm sigurleiki, fjóra tapleiki og tvö jafntefli.
Breiðablik er aftur á móti með 15 stig í níunda sæti deildarinnar eftir fjóra sigurleiki, fjóra tapleiki og þrjú jafntefli.
0. mín
Byrjunarliðin eru komin í hús en þau má sjá hér til hliðar.
0. mín
Dómari leiksins er Guðmundur Ársæll Guðmundsson og honum til aðstoðar eru Áskell Þór Gíslason og Jan Eric Jessen. Eftirlitsmaður KSÍ er Guðmundur Sigurðsson.
0. mín
Aðstæður til knattspyrnuiðkunar eru ekkert sérstakar á Akranesi í kvöld. Nokkuð stífur vindur er þvert á völlinn og líklegt að það muni hafa nokkur áhrif á gæði leiksins.
1. mín
Leikurinn er hafinn og Breiðablik byrjar með boltann.
4. mín
Kristinn Jónsson með aukaspyrnu inn í vítateig ÍA og þar á Þórður Steinar Hreiðarsson góðan skalla sem fer rétt framhjá stönginni.
15. mín
Það er frekar lítið í gangi í leiknum á Akranesi þessa stundina.
19. mín
Gult spjald
Arnar Már Guðjónsson
19. mín
Andri Adolphsson með frábæra rispu upp allan vallarhelming Breiðabliks inn í vítateig þar sem Ingvar Þór Kale ver skot hans vel. Andri á svo sendingu sem fer í hendi varnarmanns og Skagamenn heimta vítaspyrnu. Dómari leiksins lætur leikinn halda áfram.
25. mín
Jóhannes Karl Guðjónsson með hornspyrnu og Ármann Smári Björnsson á fínan skalla rétt yfir þverslá blikamarksins.
33. mín
Sindri Snær Magnússon með gott skot að marki ÍA en Árni Snær Ólafsson ver vel í markinu.
34. mín
Gult spjald
Elfar Árni Aðalsteinsson
39. mín
Jón Vilhelm Ákason á frábæra fyrirgjöf inn í vítateig Breiðabliks og Andri Adolphsson rétt missir af sendingunni, einn fyrir opnu marki.
45. mín
Búið er að flauta til leikhlés í tilþrifalitlum fyrri hálfleik og staðan 0-0.
45. mín
Þess má geta að Ben Eversen, sem Breiðablik fékk nýlega frá Tindastól, er ekki í leikmannahópi þeirra í dag vegna meiðsla. Hann er meiddur á rist eftir að hafa fengið högg í sínum síðasta leik fyrir stólanna.
46. mín
Seinni hálfleikurinn er að hefjast. Skagamenn hefja leik.
47. mín
Andri Adolphsson með góða sendingu inn í vítateig Breiðabliks og Jón Vilhelm Ákason nær ágætum skalla sem Ingvar Þór Kale ver af öryggi.
47. mín
Gult spjald
Wentzel Steinarr Ragnarsson Kamban
55. mín
Gult spjald
Finnur Orri Margeirsson
56. mín
Gult spjald
Sindri Snær Magnússon
57. mín
Árni Snær Ólafsson markvörður ÍA tekur aukaspyrnu fram völlinn, þar er Garðar Gunnlaugsson vel staðsettur og nær góðum skalla innfyrir vörn Breiðabliks þar sem Andri Adolphsson á gott hlaup. Skot hans fer rétt framhjá stönginni.
65. mín
Gult spjald
Sverrir Ingi Ingason
67. mín
InnHaukur Baldvinsson
ÚtÞórður Steinar Hreiðarsson
71. mín
Andri Rafn Yeoman með skalla rétt framhjá marki ÍA eftir hornspyrnu.
71. mín
InnDavíð Kristján Ólafsson
ÚtAndri Rafn Yeoman
75. mín
InnÓlafur Valur Valdimarsson
ÚtJón Vilhelm Ákason
75. mín
InnGylfi Veigar Gylfason
ÚtWentzel Steinarr Ragnarsson Kamban
76. mín
Andri Adolphsson með stungusendingu innfyrir vörn Breiðabliks á Theo Furness sem er einn á móti markverði. Ingvar Þór Kale ver frábærlega frá honum í tvígang í bestu sókn leiksins.
79. mín
InnÁrni Vilhjálmsson
ÚtSindri Snær Magnússon
82. mín
InnEggert Kári Karlsson
ÚtGarðar Bergmann Gunnlaugsson
85. mín
Elvar Árni Aðalsteinsson með frábært skot utarlega í vítateignum en Árni Snær Ólafsson ver stórkostlega í horn.
87. mín
MAAAARK!
Árni Vilhjálmsson
Árni Vilhjálmsson nær boltanum utarlega á vallarhelmingi ÍA. Hann leikur boltanum inn í vítateig og nær góðu skoti á nærstöngina sem Árni Snær Ólafsson gat ekki varið.92. mín
MAAAARK!
Jóhannes Karl Guðjónsson
Rafn Andri Haraldsson brýtur á Andra Adolphssyni og vítaspyrna dæmd. Úr henni skorar Jóhannes Karl Guðjónsson af öryggi.92. mín
Rautt spjald
Sverrir Ingi Ingason
Sverrir Ingi Ingason fær sitt annað gula spjald fyrir að ýta við leikmanni ÍA.92. mín
Gult spjald
Eggert Kári Karlsson
95. mín
Leikurinn búinn með jafntefli 1-1 á skrautlegum lokamínútum.


