0. mín
Heil og sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Keflavíkur og Fylkis.
Það blæs hressilega í Reykjanesbæ.
Þetta eru liðin í 6. og 7. sæti og vonandi fáum við jafnan og spennandi leik.
0. mín
David Elebert er ekki með Fylki í dag. Hann tekur út leikbann.
0. mín
Plötusnúðurinn hér á Keflavík fær falleinkunn. Það er samróma álit allra í blaðamannastúkunni.
0. mín
Andri Þór Jónsson og Kristján Valdimarsson eru meiddir og því ekki með Fylki í dag.
0. mín
Dómarinn í dag er fagmaðurinn Garðar Örn Hinriksson sem valinn var besti dómari umferða 1-11 í Pepsi-deildinni. Gunnar Sverrir og Sverrir Gunnar eru með flöggin.
1. mín
Leikurinn er hafinn! Fylkismenn byrjuðu með boltann. Heimamenn sækja í átt að Toyota-sláturhúsinu.
6. mín
Bæði lið átt hættulegar sóknir hér í upphafi en ekki tekist að klára þær með skoti.
11. mín
Vindurinn hefur sín áhrif á leikinn og menn eru að reyna að finna taktinn.
17. mín
Eitt af klúðrum sumarsins!!! Björgólfur Takefusa hitti ekki markið í algjöru dauðafæri.
24. mín
Tíðindalítið hér. Jafnræði með liðunum.
30. mín
Arnór Ingvi með fína skottilraun en yfir fór boltinn.
36. mín
Jóhann Birnir með sláarskot af löngu færi! Rokið greip boltann og úr varð þetta fína skot.
41. mín
Arnór Ingvi í dauðafæri en skaut framhjá.
45. mín
Hálfleikur - Markalaust. Vonandi verður meira fjör í seinni hálfleiknum.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn - Keflvíkingar voru örlítið öflugri í fyrri hálfleiknum.
46. mín
InnMagnús Þórir Matthíasson
ÚtFinnur Ólafsson
56. mín
ZZZZZZZZZZZZZzzzzzzzzzzzzzzzz
59. mín
Björgólfur Takefusa í hörkufæri en Ómar náði með naumindum að bjarga.
63. mín
InnHilmar Geir Eiðsson
ÚtArnór Ingvi Traustason
64. mín
Kjartan Sturluson er á vellinum.
65. mín
Árni Freyr með skot yfir markið.
Jæjaaaaaaaaaa.... það má endilega eitthvað fara að gerast í þessum leik.
68. mín
InnJóhann Þórhallsson
ÚtBjörgólfur Takefusa
72. mín
InnMagnús Sverrir Þorsteinsson
ÚtSigurbergur Elísson
73. mín
Árni Freyr með frábæra stungu á Ingimund en skot hans arfaslakt.
76. mín
MAAAARK!
Jóhann Þórhallsson
Varamaðurinn Jóhann skoraði! Fékk frábæra sendingu og vörn Keflavíkur galopnaðist. Jóhann vippaði boltanum snyrtilega yfir Ómar í markinu.77. mín
InnDenis Selimovic
ÚtFrans Elvarsson
80. mín
Gult spjald
Árni Freyr Guðnason
83. mín
InnÁsgeir Eyþórsson
ÚtÁrni Freyr Guðnason
87. mín
Gult spjald
Jóhann Þórhallsson
88. mín
MAAAARK!
Ingimundur Níels Óskarsson
Fékk pláss og tíma og lét vaða á markið. Náði flottu skoti í hornið. Fylkismenn að ná í stigin þrjú hér.93. mín
Leik lokið - Keflvíkingar lélegir í seinni hálfleik og Fylkismenn unnu verðskuldað.



