Besta-deild karla
Fram
LL
2
1
Fylkir
1
Besta-deild karla
HK
LL
3
1
Víkingur R.
1
Grindavík
0
2
Fjölnir
0-1
Ragnar Leósson
'57
0-2
Hilmir Rafn Mikaelsson
'59
21.05.2021 - 19:15
Grindavíkurvöllur
Lengjudeild karla
Aðstæður: 5m/s úr norðvestri sólin skín og hitinn í kringum 10 gráður
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson
Áhorfendur: 262
Maður leiksins: Sigurjón Daði Harðarson
Grindavíkurvöllur
Lengjudeild karla
Aðstæður: 5m/s úr norðvestri sólin skín og hitinn í kringum 10 gráður
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson
Áhorfendur: 262
Maður leiksins: Sigurjón Daði Harðarson
Byrjunarlið:
1. Aron Dagur Birnuson (m)
Oddur Ingi Bjarnason
('77)
2. Ólafur Guðmundsson
4. Walid Abdelali
5. Nemanja Latinovic
('62)
7. Sindri Björnsson
8. Tiago Fernandes
('86)
10. Dion Acoff
('45)
23. Aron Jóhannsson (f)
26. Sigurjón Rúnarsson
33. Sigurður Bjartur Hallsson
Varamenn:
6. Viktor Guðberg Hauksson
('62)
11. Símon Logi Thasaphong
('86)
15. Freyr Jónsson
16. Þröstur Mikael Jónasson
19. Mirza Hasecic
('77)
21. Marinó Axel Helgason
36. Laurens Symons
('45)
Liðsstjórn:
Sigurbjörn Örn Hreiðarsson (Þ)
Jósef Kristinn Jósefsson
Benóný Þórhallsson
Maciej Majewski
Guðmundur Valur Sigurðsson
Haukur Guðberg Einarsson
Vladimir Vuckovic
Ólafur Tryggvi Brynjólfsson
Gul spjöld:
Walid Abdelali ('45)
Sigurjón Rúnarsson ('83)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Leiknum er lokið með sigri Fjölnis sem líkt og Fram er með fullt hús stiga eftir 3 leiki. Viðtöl og skýrsla væntanleg í kvöld.
91. mín
Sigurjón brýtur af sér er Fjölnir geysist upp en Einar beitir hagnaði og líklega sem betur fer fyrir Sigurjón. Einar kallar brotið til baka en sleppir honum við spjaldið, hefði ekki verið óeðlilegt að gefa gult á þetta.
85. mín
ÚFF ljótur árekstur í teig Fjölnis þegar Sigurjónm kemur út og lendir á eigin leikmanni og þeir liggja báðir Sigurjón og Sigurpáll. Standa báðir fljótt upp og virðast í lagi.
85. mín
Leikurinn dottið vel niður og Fjölnismenn eflaust sáttir við sitt. Grindvíkingar ekki upp á marga fiska þessa stundina fram og við og ekkert í kortunum að þeir ætli sér að koma til baka.
73. mín
Sigurður með skalla eftir hornið en nær ekki krafti í hann og boltinn auðveldur fyrir Sigurjón í markinu.
71. mín
Sigurður Bjartur með skalla af stuttu færi eftir fyrirgjöf Odds en Sigurjón sér við honum með frábærri vörslu.
68. mín
Grindavík fær horn. Ná þeir að svara og hleypa spennu í þetta?
Spyrnan inn í boxið en skölluð yfir markið.
Spyrnan inn í boxið en skölluð yfir markið.
64. mín
Stórhættulegur bolti frá vinstri en sóknarmenn Grindvíkingar missa allir af boltanum. Fjölnismenn koma boltanum í horn sem ekkert verður úr.
63. mín
Aron Jó með fast skot úr aukaspyrnu af löngu færi. Sigurjón með það allt á hreinu.
61. mín
Enn koma Fjölnismenn. Valdimar inn á teignum en skot hans beint á Aron sem ver með fótunum.
59. mín
MARK!
Hilmir Rafn Mikaelsson (Fjölnir)
Heldur betur lifnað yfir gestunum.
Hilmir Rafn fær boltann og á eftir að gera helling. Keyrir í átt að marki og fer fram hjá hverjum varnarmanninum á fætur öðrum áður en hann leggur boltann snyrtilega framhjá Aroni í markinu.
Stórglæsilegur sprettur og mark.

57. mín
MARK!
Ragnar Leósson (Fjölnir)
Augnabliks gæði og Fjölnismenn tæta vörn Grindavíkur í sig.
Spila sig í gegn og Ragnar setur boltann þægilega í netið. Sá nú ekki fyrir sólinni hver átti síðustu sendinguna á hann.
Spila sig í gegn og Ragnar setur boltann þægilega í netið. Sá nú ekki fyrir sólinni hver átti síðustu sendinguna á hann.
57. mín
Nemo með fyrirgjöf frá hægri. Laurens reynir við boltann en missir af honum sem endar í fangi Sigurjóns.
53. mín
Valdimar Ingi fer niður í eða við teiginn. Fannst lítið í þessu og Einar sammála mér í því.
53. mín
Hilmir Rafn keyrir upp hægra meginn og kemst inn á teiginn en nær ekki góðu skoti á markið. Auðvelt fyrir Aron í marki Grindavíkur.
50. mín
Oddur fer vel með boltann úti á hægri vængnum en fyrirgjöf hans beint á varnarmann.
45. mín
Hálfleikur
Það er kominn hálfleikur hér í Grindavík. Dapur fyrri hálfleikur að baki og vonandi að liðin mæti ferskari til leiks í seinni hálfleik.
44. mín
Mínúta eftir af fyrri hálfleik. Endurskipulagning og smá hárblástur til að kveikja líf væri vel þegið frá þjálfurum liðanna.
42. mín
Þetta er svo dauft. Fátt sem bendir til þess að það sé að fara koma mark í þetta.
Grindavík fær þó horn hér.
Grindavík fær þó horn hér.
35. mín
Sigurður Bjartur fer niður í teignum og Grindvíkingar biðja um eitthvað af veikum mætti. Aldrei til í dæminu frá mér séð.
34. mín
Hægst verulega á leiknum aftur og lítið að frétta. Get ekki sagt að þetta sé skemmtilegur fótboltaleikur að horfa á.
30. mín
Dion að vinna sig í færi á markteig en varnarmenn komast fyrir boltinn aftur fyrir í markspyrnu.
26. mín
Orri Þórhallson þarf að yfirgefa völlinn að skipun Einars. Líklega blæðir úr honum og þarf að stöðva það.
25. mín
Tiago með lúmskt skot eftir sendingu frá Oddi en boltinn yfir markið. Aðeins að lifna yfir þessu.
23. mín
Þvílík varsla hjá Sigurjóni!!!!
Boltinn fer í gegnum pakkann yfir á fjærstöngina þar sem Sindri Björnsson lúrir. Fátt virðist geta komið í veg fyrir að hann hleypi lífi í leikinn með marki en Sigurjón á einhvern ótrúlegan hátt bjargar. Fjölnismenn koma svp boltanum frá.

17. mín
Boltinn kominn vel afturfyrir. Einar stendur og bíður eftir línuverðinum sem gerir ekki neitt. Grindvíkingar ætla að halda áfram eftir góða 10 sek kyrrstöðu en loksins bendir Einar í horn.
11. mín
Jafnræði með liðunum ennþá. Grindvíkingar þó að bæta ögn í og halda boltanum betur. En að öðru leyti lítið sem ekkert að gerast.
3. mín
Fyrir þá sem því velta fyrir sér þá er fjarvera Zeba úr vörn Grindavíkur vegna leikbanns en hann fékk rautt gegn Þór á dögunum.
1. mín
Fínt færi hjá gestunum strax í upphafi. Pressa hátt og vinna boltann sem er sendur inn í teiginn fyrir fætur Hilmars Rafns sem á fast skot í hliðarnetið.
Fyrir leik
Spámaðurinn
Fótbolti.net fékk Axel Óskar Andrésson sem leikur með Riga FC í Lettlandi til að spá í 3. umferð deildarinnar. Fimm leikir eru á föstudag og einn á laugardag. Um leik Grindavíkur og Fjölnis sagði hann.
Grindavik - Fjölnir 1 - 1
Tvö lið sem eru ekkert að grínast. Bæði lið virða stigið. Andri Freyr svikari úr Mosfellssveitinni fær boltann í hnakkadrambið eftir hornspyrnu Arnór Breka betur þekktur sem Júdas, og slysast til að skora.

Heimamenn í Grindavík sitja í 7.sæti deildarinnar fyrir leik með 3 stig. Stigin 3 hlutu þeir eftir stórfínan sigur á liði ÍBV. Meðbyrinn úr þeim leik dugði lærisveinum Sigurbjörns Hreiðarssonar þó ekki lengi en þeir voru teknir í kennslustund af öflugu liði Þórs sem stýrt er af Grindavíkurgoðsögninni Orra Frey Hjaltalín en lokatölur urðu 4-1.
Grindavík var á góðum degi í fyrra eitt besta lið deildarinnar og sýndi að þeir gátu unnið hvern sem er. Stöðugleikinn var þó þeirra helsti óvinur í fyrra sem að fá á sig mörk á lokamínútum leikja. Því þurfa þeir að breyta á þessu tímabili ætli þeir sér að vera með í slagnum um að fara upp af einhverri alvöru.

Fjölnir hefur hafið mótið á tveimur sigrum og er því með fullt hús stiga líkt og Fram og Vestri. Endurkomusigur gegn Þrótti markaði upphaf deildarkeppninar fyrir Grafarvogspilta. Sterkur heimasigur á Gróttu fylgdi svo í kjölfarið.
Fjölnisliðið mun verða í baráttunni þetta sumarið um að komast aftur upp í Pepsi Max að ári en keppnin er hörð enda sætin sem í boði eru aðeins tvö. Leikir eins og í kvöld gegn Grindavík verða að teljast lykilleikir fyrir Fjölni og sigur gæfi góð fyrirheit um framhaldið.

25. Sigurjón Daði Harðarson (m)
2. Valdimar Ingi Jónsson
('74)
4. Sigurpáll Melberg Pálsson
6. Baldur Sigurðsson
8. Arnór Breki Ásþórsson
11. Dofri Snorrason
15. Alexander Freyr Sindrason
16. Orri Þórhallsson
('45)
19. Hilmir Rafn Mikaelsson
('74)
29. Guðmundur Karl Guðmundsson (f)
31. Jóhann Árni Gunnarsson
('84)
Varamenn:
9. Andri Freyr Jónasson
('74)
10. Viktor Andri Hafþórsson
11. Hallvarður Óskar Sigurðarson
('74)
17. Lúkas Logi Heimisson
('84)
18. Kristófer Jacobson Reyes
22. Ragnar Leósson
('45)
28. Hans Viktor Guðmundsson
Liðsstjórn:
Ásmundur Arnarsson (Þ)
Gunnar Sigurðsson
Gunnar Valur Gunnarsson
Steinar Örn Gunnarsson
Einar Hermannsson
Kári Arnórsson
Magnús Birkir Hilmarsson
Sigurður Frímann Meyvantsson
Gul spjöld:
Rauð spjöld: