SKÝRSLAN: Blikar tóku stigin í seinni hálfleik
Hvað réði úrslitum?
Gæði Blika eru bara mun meiri en Fylkismanna.
Svæfandi fyrri hálfleikur vissulega en eftir að Blikar nýttu sér mistök Fylkismanna strax í upphafi síðari hálfleiks skiptu þeir um gír og keyrðu yfir gestina.

Bestu leikmenn
1. Viktor Karl Einarsson
Stjórnaði ferðinni hjá Blikum á miðjunni og setti mark. Allt flæðið í gegnum hann.
2. Kristinn Steindórsson
Algerlega fundið sig í grænu treyjunni, stanslaust að leita að sendingum sem skipta máli sóknarlega og átti frábæra stoðsendingu sem skapaði fyrsta markið.
Atvikið
Fyrsta mark Blika.
Eftir dapran fyrri hálfleik sópar Kristinn upp vonda sendingu og stingur strax á Árna sem skorar. Eftir það var sólarlaust hjá Árbæingum.

Hvað þýða úrslitin?
Blikar lyfta sér upp í 13 stig og í fjórða sæti deildarinnar með leik til góða á liðin fyrir ofan sig.
Fylkismenn sitja áfram í 8.sæti en gætu færst neðar þegar líður á umferðina.

Vondur dagur
Sóknarleikur Fylkis í dag var hreinlega enginn.
Erfitt að ætla að benda á einn leikmann frekar en annan þar. Fengu úr mjög litlu að moða frá liðinu en þegar boltinn þó komst upp varð lítið úr.
Voru aldrei nálægt því að skora.

Dómarinn - 9,0
Teymið höndlaði þennan leik bara fullkomlega.
Leikurinn of léttur að dæma til að fá fullt hús en línan klár og öll stóru atvikin rétt. Flottir í stuttermabolunum og fengu allir lit á kollinn. Vel gert.