Fotbolti.net
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Pepsi Max-deild karla
Samsungvöllurinn
Vindur - breytileg átt, skýjað og 12°C
Stjarnan
Stjarnan
2 - 1
Valur
Valur
0 - 127' Rasmus Steenberg ChristiansenHilmar Árni Halldórsson 47'1 - 1Heiðar Ægisson 51'2 - 1
Dómari: Pétur Guðmundsson
Áhorfendur: 623

SKÝRSLAN: Stjarnan fyrst til að leggja meistarana

Hvað réði úrslitum?

Innkoma Stjörnunnar í seinni hálfleik var mjög öflug. Valsmenn áttu fyrstu sókn hálfleiksins en svo tók Stjarnan yfir og sýndi að það býr hellingur í þessu liði

Bestu leikmenn

1. Tristan Freyr Ingólfsson (Stjarnan)

Tvö unninn návígi og tvær stoðsendingar strax í kjölfarið á fyrstu mínútum seinni hálfleiks. Var nálægt þriðju stoðsendingunni og átti tilraun rétt framhjá líka, alvöru löpp!

2. Haraldur Björnsson (Stjarnan)

Varði nokkrum sinnum vel og greip inn í á mikilvægum augnablikum. Virkilega flott frammistaða.

Atvikið

Sigurmark Stjörnunnar: Tristan vann boltann af Kaj Leo sem var enn inn á vellinum en var búinn að biðja um skiptingu. Tristan var ákveðnari í návíginu og sendi svo boltann inn á teiginn og þar mætti Heiðar Ægisson af hægri kantinum og skoraði.

Hvað þýða úrslitin?

Fyrsta tap Vals og meistararnir missa toppsætið. Fyrsti sigur Stjörnunnar og liðið tvöfaldar stigafjölda sinn.

Vondur dagur

Patrick Pedersen fékk þrjú góð færi og tvö þeirra voru sérstaklega góð en hann hitti ekki markið í þeim.

Dómarinn - 7

Pétur átti fínan dag, kannski full spjaldaglaður þar sem leikurinn var ekki mjög grófur. Ég er ósammála því að spjalda Kristin Frey fyrir 'dýfu' en ég er ekki dómari.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.