Fotbolti.net
Haraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Lengjudeild karla
Fagverksvöllurinn Varmá
Blankalogn og blautt teppi, toppaðstæður!
Afturelding
Afturelding
3 - 3
Selfoss
Selfoss
Pedro Vazquez Vinas 8'1 - 0Pedro Vazquez Vinas 11'2 - 02 - 123' Gary John Martin2 - 244' Gary John Martin2 - 366' Ingvi Rafn Óskarsson Kári Steinn Hlífarsson 79'3 - 3
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson.
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Markaregn í Mosó

Hvað réði úrslitum?

Bæði lið fengu haug af færum, liðin skoruðu sitthvor þrjú mörkin í stórskemmtilegum leik og hefðu bæði getað unnið leikinn með fjórða markinu en allt kom fyrir ekki.

Bestu leikmenn

1. Gary Martin (Selfoss)

Gary skoraði tvö góð mörk og var stórhættulegur allan leikinn, gerði varnarmönnum Aftureldingar lífið leitt oft á tíðum.

2. Pedro Vazquez (Afturelding)

Pedro sýndi gæði sín í dag með tveimur mörkum sem voru ansi hugguleg og hrikalega vel framkvæmd, hrikalega skemmtilegur og góður leikmaður.

Atvikið

Markvarslan frá Stefáni í lokin, Pedro fær boltann aleinn á fjær og hamrar á markið en Stefán eins og köttur í markinu, mætir og ver stórkostlega!

Þá átti Pedro að innsigla þrennuna og koma Mosfellingum yfir aftur.

Hvað þýða úrslitin?

Selfyssingar fara uppúr fallsæti og Mosfellingar hreyfast lítið en bæði lið bæta stigi við á töfluna góðu.

Vondur dagur

Bæði lið skora 3 mörk, varnarleikurinn var ekkert frábær í leiknum og fannst mér Oliver Beck í þokkalegum vandræðum með Gary Martin, einnig var Þormar í vandræðum í fyrri hálfleik áður en hann var tekinn útaf.

Dómarinn - 6

Alltílagi leikur, sumt vafasamt en ekkert stófellt sem féll gegn liðunum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.