SKÝRSLAN: Tvö mörk í uppbótartíma fleyttu Grindavík í annað sætið
Hvað réði úrslitum?
Fjarvera Arnars Þórs Helgasonar úr vörn Gróttu eftir að hann fékk að líta rauða spjaldið eftir 85 mínútna leik. Án stóra varðturnsins í hjarta varnarinnar var vörn Gróttu hvorki fugl né fiskur og heimamenn í Grindavík gengu á lagið.
Bestu leikmenn
1. Sigurður Bjartur Hallsson
Framherji á tánum sem skorar fyrsta mark leiksins eftir sláarskot Arons Jó. Bætti við öðru úr víti seint í leiknum en það sést á leik hans að hann er með sjálfstraustið í lagi og óhræddur og óþreytandi við það að keyra á varnir andstæðingana. Flottur leikur hjá Sigurði í kvöld.
2. Sigurjón Rúnarsson
Annar markaskorari sem stóð líka í ströngu í varnarleiknum í baráttu við heitasta framherja deildarinnar Pétur Theodór. Sinnti sínu hlutverki vel og dreif sína menn áfram.
Atvikið
Rauða spjaldið. Skömmu áður hafði Arnar farið í tæklingu út á væng og voru köllinn um seinna gula gríðarlega há þá. Keyrir svo sóknarmann Grindavíkur niður á miðjum vellinum og virðist lítið vera að spá í boltann og uppskar réttilega sitt seinna gula spjald og þar með rautt.
Hvað þýða úrslitin?
Grindavík fer í 2.sæti deildarinnar með 15 stig 6 stigum á eftir toppliði Fram. Grótta situr í því 7. með 8 stig.
Vondur dagur
Ágúst Gylfason horfir upp á lið sitt tapa leik í uppbótartíma annan leikinn í röð. Myndi flokkast sem vondur dagur á flestum bæjum,
Dómarinn - 7
Bara nokkuð solid hjá Sveini Arnarsyni. Vítaspyrnan í blálokin var mögulega nokkuð soft en að öðru leyti ágætlega dæmdur leikur.


