SKÝRSLAN: Seiglusigur Kórdrengja á Þórsvelli
Hvað réði úrslitum?
Það virtist vera örlítið meira eldsneyti í tankinum hjá Kórdrengjum. Leikurinn var ekki áferðarfallegur og það var ekki mikið um færi, en Kórdrengir unnu baráttuna.
Mark Þóris var svolítið í takt við allan leikinn. Þórsarar hentu sér fyrir þónokkur skot áður en Þórir náði svo loks að þvinga boltann í netið.
Mark Þóris var svolítið í takt við allan leikinn. Þórsarar hentu sér fyrir þónokkur skot áður en Þórir náði svo loks að þvinga boltann í netið.
Bestu leikmenn
1. Fatai Gbadamosi (Kórdrengir)
Vann ótalmarga bolta á miðjunni og gerði einföldu hlutina vel. Þórsarar vildu sjá hann fá seinna gula spjaldið fyrir tæklingu seint í leiknum en ég taldi Sigurð gera rétt í að spjalda ekki þá.
2. Þórir Rafn Þórisson (Kórdrengir)
Var sprækur á kantinum og skoraði svo markið sem skildi liðin að.
Atvikið
Markið sem dæmt var af Þór.
Það ærðist allt á vellinum þegar Alvaro hélt að hann hefði jafnað. Kórdrengir höfðu stillt boltanum upp á miðjunni, tilbúnir að hefja leik að nýju þegar Sigurður Hjörtur flautaði og dæmdi markið af.
Ákvörðunin var ekki vinsæl hjá heimamönnum.

Hvað þýða úrslitin?
Kórdrengir tylla sér, í það minnsta tímabundið, í 2. sætið í Lengjudeildinni með 14 stig og skilja um leið Þór svolítið eftir. Þórsarar hafa nælt í 7 stig í fyrstu 7 leikjunum og eru í 8. sætinu.
Vondur dagur
Sóknarleikurinn var ekki upp á marga fiska í dag. Hann var í raun jafn slakur og barátta liðanna var mögnuð. Talsvert misheppnaðar sendingar, þar sem að leikmenn settu boltann útaf algjörlega óáreittir.
Dómarinn - 8
Sigurður Hjörtur hafði góð tök á leiknum.