Fotbolti.net
Baldvin Már Borgarsson
Baldvin Már Borgarsson
Lengjudeild karla
Grindavíkurvöllur
Grindavík
Grindavík
2 - 2
Þór
Þór
0 - 129' Birgir Ómar Hlynsson0 - 253' Jóhann Helgi HannessonAron Jóhannsson 69'1 - 2Sigurður Bjartur Hallsson 76'2 - 2
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson

SKÝRSLAN: Jafntefli í hörkuleik í Grindavík

Hvað réði úrslitum?

Bæði lið skoruðu tvö góð mörk, Grindvíkingar voru frekar gjafmildir við Þórsara sem áttu alls ekki sinn besta dag en uppskáru stig á erfiðum útivelli.

Bestu leikmenn

1. Birgir Ómar Hlynsson (Þór)

Mér fannst Birgir frábær í leiknum, bjargaði oft vel varnarlega og skoraði gott mark fyrir Þórsara í leiknum, fór meiddur af velli og vonandi er það ekkert slæmt.

2. Sigurður Bjartur Hallsson (Grindavík)

Siggi var gríðarlega kraftmikill og öflugur að venju og lét mikið til sín taka, skoraði jöfnunarmarkið og var svona helsta ógn heimamanna í leiknum.

Atvikið

Í stöðunni 2-2 dæmir Einar Ingi og hans teymi ekki eina augljósustu aukaspyrnu sem ég hef séð þegar Siggi Marinó er tekinn niður við vítateiginn á leiðinni inn á hann, hefði verið aukaspyrna á hættulegum stað á mikilvægum tímapunkti.

Hvað þýða úrslitin?

Grindvíkingar minnka forystu ÍBV um 2. sætið niður í 3 stig en naga sig eflaust í handarbakið að hafa ekki minnkað hana meira. Þórsarar sigla sinn lygna sjó með 16 stig.

Vondur dagur

Eins og mér fannst Sigurjón Rúnarsson heilt yfir góður í leiknum, þá gerir hann stærstu og dýrustu mistök leiksins og það hrikalega klaufalega, hann er betri en þetta og hann veit það sjálfur, upp með hausinn!

Dómarinn - 5

Skrýtin lína, lélegt samræmi milli brota og spjalda á liðin og ég er já enn hissa á að Siggi Marinó hafi ekkert fengið þarna á 80 mínútu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.