Fotbolti.net
Helga Katrín Jónsdóttir
Helga Katrín Jónsdóttir
Mjólkurbikar kvenna
Kópavogsvöllur
Ekkert sumarveður - úði og smá vindur
Breiðablik
Breiðablik
4 - 3
Valur
Valur
Agla María Albertsdóttir 21'1 - 0Selma Sól Magnúsdóttir 47'2 - 02 - 148' Mary Alice Vignola2 - 265' Ída Marín HermannsdóttirTaylor Marie Ziemer 74'3 - 23 - 391' Fanndís Friðriksdóttir Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir 92'4 - 3
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson
Áhorfendur: 325
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Dramatík í uppbótartíma á Kópavogsvelli

Hvað réði úrslitum?

Valur byrjaði leikinn af krafti og Blikar sáu ekki til sólar fyrstu mínúturnar þar til Agla kom þeim yfir. Eftir það var þetta stál í stál út fyrri hálfleikinn. Blikar skoruðu strax í byrjun seinni en þá tók Valur yfir og skoruðu tvö mörk. Blikar komast svo yfir þvert gegn gangi leiksins og allt stefndi í sigur Blika þar til Fanndís jafnaði í uppbótartíma. Áslaug Munda kom Blikum svo aftur yfir nokkrum sekúndum seinna og tryggði Blikum sæti í úrslitaleiknum. Í stuttu máli, nokkuð jafn leikur, Valur ívið sterkari en Blikar áttu hættulegri færi.

Bestu leikmenn

1. Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir

Það er bara ekki annað hægt en að gefa Áslaugu Mundu þetta. Hún var frábær í leiknum og skapaði mikið fram á við með hraðanum sínum. Svo skoraði hún þetta ótrúlega sigurmark í uppbótartíma.

2. Mary Alice Vignola

Margir sem koma til greina hér, t.d. Selma Sól og Kristín Dís en ég ætla að gefa Mary Alice þetta í dag. Hún var geggjuð í kvöld og skapaði mikinn usla í vörn Blika og skoraði fyrsta mark vals snemma í seinni hálfleik.

Atvikið

Sigurmark Blika. Fanndís jafnaði metin í uppbótartíma með frábæru skoti og allt stefndi í framlengingu. Þá tók Áslaug Munda til sinna ráða og jafnaði strax í næstu sókn og tryggði Blikum ótrúlegan sigur.

Hvað þýða úrslitin?

Breiðablik hefur tryggt sér sæti í úrslitaleik Mjólkurbikarsins þar sem þær mæta Þrótti Reykjavík.

Vondur dagur

Mér finnst enginn eiga þetta skilið í dag. Mig langar frekar að hrósa öllum leikmönnum fyrir gjörsamlega frábæran knattspyrnuleik með fullt af mörkum og dramatík.

Dómarinn - 9

Vel dæmdur leikur hjá tríóinu. Með allt á hreinu í þessum stórleik sem er frábært.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.