Fotbolti.net
Eysteinn Ívar Guðbrandssson
Pepsi-Max deild kvenna
Sauðárkróksvöllur
Tindastóll
Tindastóll
2 - 1
Fylkir
Fylkir
Murielle Tiernan 7'1 - 0Laura-Roxana Rus 27'2 - 02 - 167' Helena Ósk Hálfdánardóttir
Dómari: Birgir Þór Þrastarson

SKÝRSLAN: Stólastúlkur komnar upp úr fallsæti

Hvað réði úrslitum?

Tindastóll byrjaði leikinn mjög vel og var fyrri hálfleikurinn lykilinn af sigrinum, einnig var Amber stórkostleg í markinu hjá Stólunum.

Bestu leikmenn

1. Amber Kristin Michel

Eins og áður kom fram þá var hún stórkostleg í búrinu hún Amber, var óhrædd að koma út og hreinsa upp skítinn og varði mjög vel á köflum.

2. Murielle Tiernan

Mur átti virkilegan góðan dag en hún gerði fyrra mark Tindastóls í leiknum.

Atvikið

Þegar Laura skorar sitt fyrsta mark fyrir Tindastóll í sínum fyrsta leik og ekkert smá mark líka.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að Tindastóll eru komnar upp úr fallsæti með ellefu stig og skilja Fylki á botninum með níu stig og Keflavík með níu stig þar á eftir.

Vondur dagur

Í rauninni átti enginn vondan dag í leiknum en líklegast er það bara allt Fylkisliðið í fyrri hálfleik þær voru bara ekki tilbúnar í slaginn frá fyrstu mínútu en allt annað að sjá þær í seinni hálfleik.

Dómarinn - 8

Dómarartríóið stóð sig vel í leiknum og lét leikinn fljóta vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.