Fotbolti.net
Atli Arason
Atli Arason
Pepsi-Max deild kvenna
HS Orku völlurinn
Róleg suð-vestanátt og þungskýjað
Keflavík
Keflavík
1 - 2
Stjarnan
Stjarnan
0 - 15' Alma MathiesenAerial Chavarin 37'1 - 11 - 285' Arna Dís Arnþórsdóttir
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Áhorfendur: 103 manns
Myndir: Hafrún Guðmundsdóttir

SKÝRSLAN: Stjarnan framdi rán í Keflavík

Hvað réði úrslitum?

Það er erfitt að skilja hvernig Keflavík fékk ekkert út úr þessum leik. Keflavík var meira með boltann yfir allan leikinn og áttu töluvert meira af hættulegri færum en náður ekki að koma knettinum yfir marklínu andstæðinganna. Heimakonur gleymdu sér í skamma stund undir lok leiks sem var nóg fyrir gestina til að skora sigurmarkið og sækja stigin þrjú.

Bestu leikmenn

1. Arna Dís Arnþórsdóttir

Ásamt því að skora sigurmarkið þegar fimm mínútur voru í leikslok náði Arna einnig að bjarga á marklínu örfáum mínútum síðar.

2. Naya Regina Lipkens

Naya átti nokkrar fínar markvörslur í leiknum sem hjálpaði mikið þegar uppi var staðið.

Atvikið

Mark Örnu Dísar á 86. mínútu. Þegar allt leit út fyrir að Keflavík væri að fara að skora sigurmark leiksins þá ná Stjörnukonur að þruma boltanum fram völlinn. Boltinn dettur fyrir Ingibjörgu sem kemur honum áfram á Úlfu sem á þrumuskot sem að Tiffany í marki Keflavíkur nær ekki að halda og knötturinn berst út til Örnu sem skorar á nærstöng.

Hvað þýða úrslitin?

Keflavík er komið í fallsvæðið eftir þetta tap í kvöld en Keflavík og Fylkir eru jöfn stigum á botni deildarinnar. Stjarnan nær hins vegar að klifra upp töfluna og alla leið upp í fjórða sætið með þessum sigri í Reykjanesbæ.

Vondur dagur

Tiffany Sornpao, markvörður Keflavíkur, var lengi að koma sér upp og aftur í stöðu eftir að hafa varið skot Úlfu undir lok leiks sem reyndist dýrkeypt. Stjörnukonur hafa annars almennt átt betri daga. Þeim gekk illa að halda í boltann á miðsvæðinu og Keflavík náði á stórum köflum leiksins að spila beint í gegnum þær.

Dómarinn - 9

Lögfræðingurinn á flautunni átti fínasta leik í kvöld
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.