Fotbolti.net
Daníel Smári Magnússon
Daníel Smári Magnússon
Lengjudeild karla
SaltPay-völlurinn
Mjög heitt og dálítill suð-vestan vindur. Sólin í felum á bakvið skýin.
Þór
Þór
4 - 2
Grótta
Grótta
Ásgeir Marinó Baldvinsson 26'1 - 0Jóhann Helgi Hannesson 30'2 - 0Fannar Daði Malmquist Gíslason 39'3 - 0Ásgeir Marinó Baldvinsson 55'4 - 04 - 167' Kjartan Kári Halldórsson4 - 286' Pétur Theódór Árnason
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Leik lokið!
Það var og! Sigurður Marinó neglir í vegginn og Gunnar flautar til leiksloka. Flottur sigur Þórs á Gróttuliði sem brotnaði í fyrri hálfleik og átti full erfiða fjallgöngu framundan.

Ásgeir Marinó gerði svo endanlega út um vonir Seltirninga á 55. mínútu. Gróttumenn gerðu vel í að laga stöðuna en sigurinn var sanngjarn.
96. mín
Sölvi vinnur aukaspyrnu á flottum stað fyrir Þórs. Spái því að Gunnar flauti til leiksloka að henni lokinni.
Þór
95. mín
Gult spjald

Daði Freyr Arnarsson

Fullkomlega tilgangslaust að láta nappa sig við tafir, en jæja.
94. mín
Gróttumenn reyna hvað þeir geta en þessi sigur er merktur heimamönnum, í sólinni á Akureyri.
Þór
91. mín
InnAron Ingi Magnússon
ÚtFannar Daði Malmquist Gíslason
Þór
91. mín
InnKristófer Kristjánsson
ÚtJóhann Helgi Hannesson
Þór
90. mín
Gult spjald

Orri Freyr Hjaltalín

Hefur sagt eitthvað fallegt.
89. mín
Kjartan Kári með hörku skot af talsvert löngu færi! Daði virtist þó allan tímann vera með þennan.
Grótta
86. mín
MAAAARK!

Pétur Theódór Árnason (stoðsending: Kristófer Orri Pétursson )

STAÐAN ER 4-2!!

Kristófer Orri á hornspyrnu sem endar í fjærstönginni og boltinn virtist lenda í Pétri og svo í netinu. Sel það ekki dýrara en ég kaupi það þó. Gríðarleg mannmergð í teignum og mikið kaos!
85. mín
Gróttumenn reyna hvað þeir geta að skapa sér örlitla vonarglætu en Þórsarar verjast vel og eru að sigla þessum sigri í Hamar.
Grótta
81. mín
InnSigurður Hrannar Þorsteinsson
ÚtPatrik Orri Pétursson
78. mín
12 mínútur eftir af venjulegum leiktíma. Það þarf Disney kraftaverk til þess að Grótta nái einhverju út úr þessum leik.
75. mín
Jóhanni mistekst að finna Sölva fyrir opnu marki eftir slaka sendingu Kára Daníels til baka á markmann. Þetta hefði endanlega klárað leikinn!
72. mín
Gunnar tekur Vigni Snæ og Pétur Theódór á tal þar sem að þeir áttu í einhverjum bjánalegum barningi þegar boltinn var víðsfjarri. Áfram með leikinn drengir.
71. mín
Gróttumenn vilja hendi en Gunnar segir hornspyrna! Þar grípur Daði Freyr hornspyrnu Kristófers Orra.
Grótta
68. mín
InnÓliver Dagur Thorlacius
ÚtGunnar Jónas Hauksson
Grótta
68. mín
InnSölvi Björnsson
ÚtSigurvin Reynisson
Grótta
67. mín
MAAAARK!

Kjartan Kári Halldórsson

KJARTAN KÁRI MINNKAR MUNINN!!

Þessi aukaspyrna var beint úr skóla Ronaldinho. Lágt skot undir vegg Þórsara og Daði Freyr var frosinn á línunni. 4-1!
66. mín
Kjartan Kári gerir gríðarlega vel í að vinna aukaspyrnu á stórhættulegum stað fyrir Gróttu. Tékkaði inn á hægri svona 10 sinnum áður en að Vignir tók hann niður.
Þór
64. mín
InnSölvi Sverrisson
ÚtÁsgeir Marinó Baldvinsson
Tveggja marka maðurinn Ásgeir yfirgefur völlinn ásamt Liban. Sölvi og Bjarni mæta til leiks.
Þór
64. mín
InnBjarni Guðjón Brynjólfsson
ÚtLiban Abdulahi
Tveggja marka maðurinn Ásgeir yfirgefur völlinn ásamt Liban. Sölvi og Bjarni mæta til leiks.
59. mín
Gróttumenn hafa átt í stökustu vandræðum þegar að Þórsarar pressa þá hátt á vellinum. Það hefur búið til öll heimsins vandamál fyrir gestina.
Þór
55. mín
MAAAARK!

Ásgeir Marinó Baldvinsson

HELVÍTI FREISTANDI AÐ SEGJA LEIK LOKIÐ!!

Boltinn berst til Ásgeirs Marinós í teignum eftir mikið klafs og hann nær að pota í boltann. Hann virtist hafa viðkomu í Kára Alexanderssyni en við gefum Ásgeiri markið, enda hundleiðinlegt að stíla sjálfsmörk á leikmenn!

4-0!
Þór
53. mín
Gult spjald

Liban Abdulahi

Tekur Gabríel Hrannar niður. Virtist þó ná ansi miklu af boltanum!
Grótta
51. mín
Gult spjald

Kristófer Melsted

Gult spjald fyrir dýfu við mikinn fögnuð Þórsara í stúkunni!
49. mín
Sigurður Marinó á glæsilega skiptingu út á hægri kantinn þar sem að Ásgeir Marinó er með hellings pláss til að hlaupa í. Hann tekur á rás í átt að teignum og á sendingu/skot þvert fyrir markið en Jóhann Helgi nær ekki að teygja sig í boltann.
Þór
47. mín
Gult spjald

Ásgeir Marinó Baldvinsson

Teygir sig eins langt og hann getur með löppinni til að taka Kristófer Orra niður.
Grótta
46. mín
InnGabríel Hrannar Eyjólfsson
ÚtBjörn Axel Guðjónsson
Grótta
46. mín
InnKjartan Kári Halldórsson
ÚtAxel Sigurðarson
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn

Gróttumenn hefja seinni hálfleik með boltann. Nú er að sjá hvort að gestirnir hafi einhver svör eftir áföll fyrri hálfleiksins!
45. mín
Hálfleikur
Þriggja marka forysta Þórs í hálfleik!

Ærið verk fyrir höndum hjá gestunum frá Seltjarnarnesi en eftir að Björn Axel hafði verið hársbreidd frá því að jafna leikinn strax eftir mark Ásgeirs að þá hafa Þórsarar bætt við tveimur.

Heimamenn hafa verið þéttir til baka og nýtt sér mistök Gróttu frábærlega.
45. mín
Það er kominn verulegur pirringur í gestina og Ágúst Gylfason getur væntanlega ekki beðið eftir hálfleiksflautinu til að skrúfa hausinn rétt á leikmenn.
40. mín
Brekkan er orðin ansi brött fyrir Seltirninga og þeir fara ekki leynt með pirring sinn. Vatn á myllu Þórs.
Þór
39. mín
MAAAARK!

Fannar Daði Malmquist Gíslason

ÞEIR ERU AÐ GANGA FRÁ GRÓTTU HÉRNA!!!

Fannar Daði Malmquist með stórkostlegan sólósprett! Brunaði í átt að marki Þórs af vinstri kantinum og kom sér inn á teig. Undir stífri pressu frá varnarmanni náði Fannar að pota boltanum með tánni framhjá Jóni í markinu. 3-0!
Grótta
34. mín
Gult spjald

Gunnar Jónas Hauksson

Gunnar Jónas þarf að róa sig niður. Tekur hér Petar niður í pressunni, um það bil 15 sekúndum eftir að hafa átt í útistöðum við Hermann Helga.
32. mín
Ég þarf hreinlega að afla mér upplýsinga um hvernig þetta mark átti sér stað!
Þór
30. mín
MAAAARK!

Jóhann Helgi Hannesson (stoðsending: Sigurður Marinó Kristjánsson )

JÓHANN HELGI SKORAR!!!

Sigurður Marinó vinnur boltann fyrir framan teig Gróttu og leggur hann á Jóhann sem gerir engin mistök. Afleitt hjá gestunum! 2-0!
29. mín
Björn Axel í DAUÐAFÆRI! Gróttumenn ná að vinna sig vel inn í teig Þórs og Pétur Theódór á laust skot sem að berst til Björns, sem er aleinn rétt fyrir framan markteiginn. Hann hittir boltann hörmulega og boltinn fer langt framhjá!
Þór
26. mín
MAAAARK!

Ásgeir Marinó Baldvinsson (stoðsending: Fannar Daði Malmquist Gíslason )

ÞÓRSARAR ERU KOMNIR YFIR!!!

Sýndist það vera Fannar Daði sem átti alveg glæsilega sendingu inn fyrir á Ásgeir. Rangstöðugildra Gróttu klikkaði algjörlega, boltinn skoppaði fullkomlega fyrir Ásgeir og hann lyfti honum glæsilega yfir Jón Ívan í markinu. 1-0!
24. mín
Pétur Theódór kemur boltanum út á Björn Axel sem á skot í varnarmann og þaðan berst hann til Gunnars Jónasar. Boltinn kemur þó full flatt upp á hann og hann skallar boltann langt framhjá marki Þórs.
21. mín
Jóhann Helgi gerir vel í að standa af sér tæklingu og kemur boltanum á Fannar Daða. Hann keyrir á Patrik sem tekst að stýra honum frá marki og Fannar reynir lága fyrirgjöf sem að Jón Ívan grípur örugglega í markinu.
20. mín
Skalli framhjá! Sýndist það vera Júlí Karlsson. Honum tókst ekki að stýra boltanum á markið.
19. mín
Gróttumönnum gengur talsvert betur að halda í boltann og fá hér aðra hornspyrnu. Gunnar Jónas tekur hana.
17. mín
Hornspyrnur Kristófers Orra eru stórhættulegar og með turna á borð við Sigurvin Reynisson og Pétur Theódór inní teig að þá myndast óhjákvæmilega titringur í vörn Þórs.
15. mín
Korter liðið og hingað til eru það stuðningsmenn Gróttu sem hafa stolið senunni.
11. mín
Mikill darraðadans myndast í teignum! Gunnar Jónas Hauksson á svo fast skot á vítateigslínunni sem endar í varnarmanni Þórs og Gróttumenn vilja fá vítaspyrnu. Höfðu lítið til síns máls, held ég.
10. mín
Axel og Patrik ná vel saman á hægri kantinum. Axel vinnur hornspyrnu eftir að Petar blokkar fyrirgjöf hans.
8. mín
Axel Sigurðarson er tekinn niður. Fannar Daði sökudólgurinn. Grótta fær aukaspyrnu aftarlega á vallarhelmingi Þórs. Þórsarar hreinsa boltann í burtu og Grótta hefur nýja sókn.
4. mín
Fannar Daði vinnur aukaspyrnu fyrir Þórsara úti á vinstri kantinum. Liban býr sig undir að taka spyrnuna inn á teig. Spyrnan er alltof föst og svífur yfir allan pakkann.
1. mín
Leikur hafinn
Jóhann Helgi kemur þessu af stað!
Fyrir leik
Liðin mætt til leiks og takast í hendur. Nú bíðum við bara eftir því að Gunnar Oddur, dómari leiksins, blási þetta í gang!
Fyrir leik
Nú var það staðfest á mánudaginn að enski leikmaðurinn Harley Willard myndi ganga til liðs við Þór eftir tímabilið. Willard hefur verið einn af lykilmönnum Víkings Ó. síðan að hann mætti til Ólafsvíkur 2019.


Fyrir leik
Liðin eru klár! Heitt í veðri, örlítil gola og farið að fjölga í stúkunni. Nokkrir galvaskir Seltirningar eru mættir til að styðja gula og bláa í dag. Þeir eru í fantastuði og láta vonandi vel í sér heyra!

Eins og alþjóð veit að þá er Þorpurum ekkert sérstaklega vel við litasamsetninguna gult/blátt og því má búast við hörkubaráttu.
Fyrir leik
Gróttumenn hafa verið á ágætis skriði undanfarið en síðustu þrír deildarleikir hafa unnist, nú síðast gegn Fjölni.

Í liði Gróttu er markahæsti leikmaður deildarinnar, Pétur Theódór Árnason, en hann er kominn með 12 mörk í deildinni og hreinlega farið á kostum.

Hlaðvarpið Dr. Football greindi frá því þann 20. júlí að Pétur væri búinn að skrifa undir hjá Breiðabliki og að framherjinn stæðilegi gengi til liðs við þá grænklæddu eftir að núverandi tímabil klárast. Þá myndi hann hitta fyrir Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfara Blika og fyrrum þjálfara Gróttu, á nýjan leik.


Fyrir leik
Góðan og blessaðan daginn! Hér fer fram textalýsing á leik Þórs og Gróttu í Lengjudeild karla. Leikurinn er liður í 13. umferð deildarinnar og sitja liðin í 7. og 8. sæti - gestirnir frá Seltjarnarnesi sæti ofar. Þórsarar hafa nælt í 16 stig en Gróttumenn stigi meira.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.