Pétur Theodór Árnason, framherji Gróttu í Lengjudeildinni, er búinn að skrifa undir hjá Breiðabliki. Þetta kemur fram á Twitter-síðu Dr. Football-hlaðvarpsins.
Grótta og Breiðablik hafa verið í viðræðum í þó nokkurn tíma um Pétur en Elvar Geir Magnússon sagði frá því í Innkastinu fyrir tíu dögum að Breiðablik væri að ganga frá samningum við framherjann.
Pétur hefur spilað vel í Lengjudeildinni í sumar og skorað 13 mörk en hann er makahæsti leikmaður deildarinnar.
Á Twitter-síðu Dr. Football-hlaðvarpsins kemur fram að Breiðablik sé búið að ganga frá samningamálum við Pétur og að hann gangi til liðs við félagið eftir þetta tímabil.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, þekkir vel til Péturs enda þjálfaði hann Gróttu í tvö tímabil og kom liðinu upp í efstu deild árið 2019.
Framherjinn Pétur Theodór Árnason hefur skrifað undir hjá Breiðabliki. Hann mætir í Smárann að yfirstandandi tímabili loknu. pic.twitter.com/5LTDg0HNf7
— Dr. Football Podcast (@drfootballpod) July 19, 2021
Athugasemdir