SKÝRSLAN: Valur sótti þrjú stig til Akureyrar
Hvað réði úrslitum?
Taflan lýgur ekki. Valskonur einfaldlega sterkara liðið. Þetta var ekki góður dagur fyrir Þór/KA, miðjan alveg týnd og þær alveg sofandi í vörninni.
Bestu leikmenn
1. Dóra María Lárusdóttir
Dóra María hélt upp á afmælið sitt í dag með góðri frammistöðu. Tók hornspyrnuna sem sjálfsmarkið kom uppúr og skoraði úr aukaspyrnunni.
2. Ásdís Karen Halldórsdóttir
Ásdís negldi síðasta naglann í kistu Þórs/KA og var lífleg, sérstaklega í síðari hálfleik.
Atvikið
Valskonur komust í 2-1 með marki beint úr aukaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks, þetta var frekar ódýr aukaspyrna og 1-1 í hálfleik hefði verið allt annað fyrir leikinn.
Hvað þýða úrslitin?
Valur er áfram á toppi deildarinnar með 29 stig eftir 12 leiki. Þór/KA hinsvegar í 6. sæti með 13 stig, jafn mörg stig og ÍBV og tveimur stigum meira en Tindastóll en Stólarnir fara til eyja á morgun.
Vondur dagur
Það gekk lítið hjá Þór/KA í dag. Miðjan alveg týnd og klaufagangur í vörninni. Arna Sif stendur þó uppúr og bjargaði því oft að tapið var ekki stærra.
Dómarinn - 6
Fínasti leikur hjá honum. Frekar soft aukaspyrna sem hann dæmdi sem annað mark Vals kom upp úr en annars flottur.


